fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 17. apríl 2026 20:00

Höskuldur skoraði sigurmark. Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fimm leikjum er lokið það sem af er kvöldi í 2. umferð Bestu deildar karla. Aðeins leikur Stjörnunnar og FH er ólokið í umferðinni, en hann hefst eftir stundarkorn.

Í fyrsta leik dagsins vann Valur 2-1 endurkomusigur á ÍBV. Mikilvægt eftir tap gegn nýliðum Þórs í fyrsta leik. Lúkas Logi Heimisson og Hólmar Örn Eyjólfsson skoruðu mörk Vals eftir að Felix Örn Friðriksson hafði komið Eyjamönnum yfir.

Mynd: DV/KSJ

Breiðablik tók á móti ÍA í hörkuleik en að lokum var það mark Höskuldar Gunnlaugssonar af vítapunktinum í fyrri hálfleik það sem skildi liðin að. Lokatölur 1-0.

Það þarf ekki að koma neinum á óvart að það var mikil skemmtun þegar KR tók á móti Þór í Vesturbænum. Amin Cosic, Eiður Gauti Sæbjörnsson, Luke Rae, Aron Sigurðarson og Ástbjörn Þórðarson gerðu mörkin í 5-2 sigri. Ingimar Arnar Kristjánsson og Isaac Atanga gerðu mörk gestanna en KR-ingar komust á toppinn með sigrinum.

Mynd: DV/KSJ

Víkingur vann sterkan 0-2 sigur á KA fyrir norðan, fyrsti sigur Íslandsmeistaranna á leiktíðinni. Gylfi Þór Sigurðsson, af punktinum, og Elías Már Ómarsson skoruðu.

Loks vann Fram spræka Keflvíkinga. Vuk Oskar Dimitrijevic kom liðinu í 2-0 en Eiður Orri Ragnarsson minnkaði muninn fyrir gestina. Bjarni Páll Linnet Runólfsson innsiglaði hins vegar 3-1 sigur Fram.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Íþróttavikan: Glódís Perla og Karólína Lea fyrir stórleikinn á morgun

Íþróttavikan: Glódís Perla og Karólína Lea fyrir stórleikinn á morgun
433Sport
Fyrir 2 dögum

Victoria Beckham tjáir sig í fyrsta sinn um fjölskylduharmleikinn – „Höfum alltaf reynt að vernda þau“

Victoria Beckham tjáir sig í fyrsta sinn um fjölskylduharmleikinn – „Höfum alltaf reynt að vernda þau“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands
433Sport
Fyrir 2 dögum

Hin þekkta sjónvarpskona vekur mikla athygli – Situr fyrir ber að ofan

Hin þekkta sjónvarpskona vekur mikla athygli – Situr fyrir ber að ofan