fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Seldur frá Skaganum til Svíþjóðar – Spilar á Íslandi fram á mitt sumar

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 16. apríl 2026 14:29

Mynd: ÍA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gabríel Snær Gunnarsson hefur verið seldur frá ÍA til Elfsborg í Svíþjóð.

Gabríel er aðeins 17 ára gamall en kom þó nokkuð við sögu með meistaraflokki ÍA á síðustu leiktíð. Þá kom hann inn á sem varamaður í fyrsta leik liðsins í Bestu deildinni þetta árið gegn Fram á dögunum.

Mun Gabríel spila áfram með ÍA þar til skipti hans til Elfsborg taka gildi í júlí.

Tilkynning ÍA
Knattspyrnufélag ÍA og sænska úrvalsdeildarfélagið IF Elfsborg hafa komist að samkomulagi um félagaskipti Gabríels Snæs Gunnarssonar (f. 2008) frá ÍA til Elfsborgar. Gabríel mun ganga til liðs við sænska félagið 1. júlí næstkomandi en leika með liði ÍA í Bestu deildinni fram að því.

Þetta eru afar gleðileg tíðindi fyrir bæði félagið og Gabríel Snæ, sem fær nú tækifæri til að stíga næstu skref á ferli sínum. Um leið er þetta mikil viðurkenning fyrir starf félagsins, en með þessum félagaskiptum verður Gabríel 13. leikmaðurinn sem ÍA selur erlendis á síðustu níu árum.

Félagið mun njóta þess að sjá Gabríel í síðustu leikjum sínum fyrir ÍA í sumar áður en hann heldur utan í júlí.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Opnar sig um að mjög frægur maður hafi heimtað nektarmynd – Tengdist loforði sem hún hafði gefið

Opnar sig um að mjög frægur maður hafi heimtað nektarmynd – Tengdist loforði sem hún hafði gefið
433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fengu leyfi til að fara á fyllerí í gær – Gæti haft áhrif í fallbaráttu deildarinnar

Fengu leyfi til að fara á fyllerí í gær – Gæti haft áhrif í fallbaráttu deildarinnar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Breiðablik sagt leggja mikið á sig til að fá Hólmbert Aron heim

Breiðablik sagt leggja mikið á sig til að fá Hólmbert Aron heim
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið