fbpx
Föstudagur 10.apríl 2026
Pressan

Mynd úr sendibílnum kollvarpaði frásögn morðingjans

Pressan
Fimmtudaginn 9. apríl 2026 07:00

Athena var myrt í lok nóvember 2022. Hún var 7 ára.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ljósmynd sem lögð var fram fyrir dómi í Texas í vikunni varpar nýju ljósi á morðið á hinni sjö ára gömlu Athena Strand sem var myrt í nóvember 2022.

Athena var numin á brott við heimili föður síns um kvöldmatarleytið þann 30. nóvember 2022 og hefur hinn 34 ára gamli Tanner Horner, sem á þessum tíma starfaði sem bílstjóri sem sinnti akstri fyrir FedEx, játað á sig morðið.

Saksóknarar birtu mynd í réttarhöldunum sem sýnir Athenu í aftursæti sendibílsins og af svipnum að dæma var hún augljóslega skelkuð.

Dauðarefsing eða lífstíðarfangelsi

Hún hafði verið úti að leika sér við heimili föður síns í Paradise í Texas þegar hún hvarf. Þegar stjúpmóðir hennar fór út að svipast um eftir henni var pakki frá Walmart á lóðinni sem innihélt Barbie-dúkkur. Leit að Athenu bar engan árangur og fannst lík hennar nokkrum dögum síðar, eða þann 2. desember.

Horner játaði sig sekan um morð á barni undir tíu ára aldri og mannrán rétt áður en réttarhöld áttu að hefjast. Með játningunni fellur niður sá hluti málsins sem snýr að sekt eða sakleysi, en kviðdómur mun nú eingöngu skera úr um refsingu, það er hvort Horner eigi skilið dauðarefsingu eða lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn.

Hélt því fram að henn hefði ekið á hana

Horner hélt því áður fram að hann hefði óvart ekið á stúlkuna þegar hann kom með sendingu að heimilinu, en um var að ræða pakka með Barbie-dúkkum sem Athena átti að fá í jólagjöf. Hann sagðist hafa gripið til þess ráðs í örvæntingu sinni að setja hana í bílinn, af ótta við að missa vinnuna eða sæta afleiðingum.

Saksóknarar segja nýju ljósmyndina hins vegar hrekja þá skýringu. James Stainton, saksóknari málsins, sagði fyrir dómi að upphaflega sagan ákærða væri „algjör þvættingur“.

Hann sagði jafnframt að kviðdómurinn fengi að sjá myndbandsupptöku frá deginum sem morðið var framið. Þótt myndavélin hafi verið hulin þegar stúlkan var kyrkt, hafi hljóðupptaka haldið áfram.

„Þið munuð heyra hvað 113 kílóa maður getur gert 30 kílóa barni,“ sagði Stainton við kviðdómendur. „Og þegar ég segi að þetta sé hræðilegt, þá meina ég það.“

Verjendur vísa til heilsufars og einhverfu

Verjendur Horners lögðu áherslu á andleg og líkamleg veikindi hans og sögðu hann hafa verið greindan með Asperger-heilkenni á unga aldri. Þá hefði hann verið útsettur fyrir blýeitrun í æsku sem hefði mögulega valdið heilaskaða og skert dómgreind hans. Í fréttum bandarískra fjölmiðla er ekki farið nánar í saumana á því hvernig Horner átti að hafa orðið fyrir áhrifum blýs í æsku.

Verjandinn Steven Goble sagði að áhrif blýs á heilann væru vel þekkt og hvatti kviðdómendur til að líta til þess þegar þeir ákveða refsingu.

„Lífstíðarfangelsi án reynslulausnar er nægilega hræðileg refsing,“ sagði Goble og hvatti kviðdóminn til að hafna dauðarefsingu.

Lögmenn Horners hafa áður byggt á því að einhverfurófsröskun hans ætti að útiloka dauðarefsingu.

Fjölskyldan krefst dauðadóms

Móðir Athenu, Maitlyn Gandy, hefur aftur á móti lýst eindregnum stuðningi við dauðarefsingu.

„Sérhver andardráttur sem hann tekur er einn sem dóttir mín fær ekki,“ sagði hún í yfirlýsingu eftir ákæru málsins.

Hún lét einnig þung orð falla um morðingja dóttur sinnar:

„Ef ég gæti setið augliti til auglits við hann myndi ég segja honum að hann væri ekkert, en Athena væri allt. Og ég mun sjá til þess að allir í þessum heimi viti að hann er ekkert og hún er allt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Dularfull andlát og hvörf níu vísindamanna með tengsl við NASA og kjarnorkuleyndarmál vekja áhyggjur

Dularfull andlát og hvörf níu vísindamanna með tengsl við NASA og kjarnorkuleyndarmál vekja áhyggjur
Pressan
Fyrir 2 dögum

Óttast að mannrán hafi verið framið á annan í páskum

Óttast að mannrán hafi verið framið á annan í páskum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Dreymir þig um að flytja út? Þessi átta lönd greiða þér fyrir það

Dreymir þig um að flytja út? Þessi átta lönd greiða þér fyrir það
Pressan
Fyrir 3 dögum

Læknir segir að þessi næringarefni séu nauðsynleg fyrir alla yfir sextugu

Læknir segir að þessi næringarefni séu nauðsynleg fyrir alla yfir sextugu
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þessi afskekkta eyja fær örfáa gesti en glímir við risavaxinn vanda

Þessi afskekkta eyja fær örfáa gesti en glímir við risavaxinn vanda
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fyrrum foringi í flughernum segir að geimverur hafi aftengt bandarísk kjarnorkuvopn í kalda stríðinu

Fyrrum foringi í flughernum segir að geimverur hafi aftengt bandarísk kjarnorkuvopn í kalda stríðinu
Pressan
Fyrir 4 dögum

Það hversu oft þú borðar getur haft áhrif á heilann

Það hversu oft þú borðar getur haft áhrif á heilann
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þess vegna er best að þurrka leirtauið ekki með viskastykki

Þess vegna er best að þurrka leirtauið ekki með viskastykki