
Vísindamenn við Oregon Health and Science University fóru yfir upplýsingar um svefn Bandaríkjamanna, sem var aflað með spurningalistum frá 2019 til 2025, og báru væntanlegan líftíma þeirra saman við hversu mikið þeir sváfu á sólarhring.
Vísindamennirnir settu mörkin við sjö klukkustunda svefn á sólarhring. Ef fólk svaf yfirleitt styttra en það, var það flokkaður sem ónægur svefn.
Niðurstaða rannsóknarinnar var skýr: Lífslíkur þeirra, sem sváfu reglulega of lítið, voru minni en þeirra sem náðu sjö klukkustunda svefni.
Vísindamennirnir tóku einnig aðra þætti, sem geta hafa áhrif á lífslengdina, með í reikninginn. Þar á meðal skort á hreyfingu, atvinnu og menntun. En samt sem áður reyndist samhengið á milli svefnskorts og styttri ævilengd halda sér.
Aðeins einn þáttur reyndist hafa meiri áhrif: Reykingar.
Vísindamennirnir segja að of lítill svefn geti verið mjög sterk vísbending um að lífslíkur fólks séu styttri en ella.
Rannsóknin hefur verið birt í vísindaritinu Sleep Advances.