fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Fókus

Jay-Z opnar sig um áfallið: „Ég var óstjórnlega reiður“

Fókus
Þriðjudaginn 24. mars 2026 14:30

Jay-Z. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski tónlistarmaðurinn og athafnamaðurinn Jay-Z segist hafa orðið „óstjórnlega reiður“ eftir að hann var sakaður um kynferðisbrot í einkamáli fyrir rúmu ári.

Málinu var síðar vísað frá dómi en Jay-Z ræðir þetta í viðtali við tímaritið GQ þar sem hann segir reynsluna hafa tekið verulega á sig.

Jay-Z, sem er 56 ára, var sakaður um að hafa beitt 13 ára stúlku kynferðisofbeldi árið 2000, ásamt tónlistarmanninum Sean „Diddy“ Combs. Konan, sem naut nafnleyndar og var aðeins kölluð Jane Doe, hélt því fram að atvikið hefði átt sér stað í eftirpartýi MTV-verðlaunahátíðarinnar.

Málinu var vísað frá í febrúar í fyrra. Í kjölfarið höfðaði Jay-Z sjálfur mál á hendur konunni og lögmönnum hennar og sakaði þau meðal annars um meiðyrði.

Í viðtalinu sagði Jay-Z að málið hefði haft djúpstæð áhrif á sig.

„Þetta var erfitt. Mjög erfitt. Ég var niðurbrotinn,“ sagði hann og bætti við að hann hefði fundið fyrir mikilli reiði. „Allt þetta tók mikið á mig. Ég var reiður. Ég hef ekki verið svona reiður í langan tíma – óstjórnlega reiður. Þú leggur ekki svona ásakanir fram á einhvern nema vera algjörlega viss.“

Hann sagðist þó hafa verið sannfærður um að sannleikurinn myndi koma í ljós.

„Ég vissi að við myndum komast í gegnum þetta því það mikilvægasta var að þetta var ekki satt. Og sannleikurinn, þegar allt kemur til alls, sigrar alltaf.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Skammast sín enn fyrir það sem hann gerði árið 1993

Skammast sín enn fyrir það sem hann gerði árið 1993
Fókus
Fyrir 3 dögum

Nístandi sorg eftir andlát Jóhannesar – „Átti allt lífið framundan“

Nístandi sorg eftir andlát Jóhannesar – „Átti allt lífið framundan“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð
Fókus
Fyrir 5 dögum

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn