fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Fókus

Sandra og Heimir selja í Hveragerði og flytja sig um set

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 17. mars 2026 11:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sandra Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar, bæjarfulltrúi og forseti bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar og varaþingmaður Viðreisnar í Suðurkjördæmi, og Heimir Eyvindarson, skólastjóri Kvíslarskóla og meðlimur sveitarinnar Á móti sól, hafa sett einbýlishús sitt í Hveragerði á sölu.

Parið hyggst þó ekki flytja úr bænum, eða eins og Sandra segir á Facebook:

„Við Heimir erum að selja fallega Drekahraunið okkar. Hér hefur okkur liðið mjög vel og eigum einstaklega góða nágranna. Við erum ekki að fara úr Hveragerði – svo það sé sagt! Mæli með.“

Húsið er 178,8 fm, þar af bílskúr 40,4 fm, byggt árið 2021. Ásett verð er 114,9 milljónir króna.

Húsið skiptist í forstofu, miðrými með eldhúsi og stofu, úr miðrými er farið í sjónvarpshol, svefnherbergi og baðherbergi.

Svefnherbergin eru þrjú. Einnig er þvottahús með aðgengi út í garð og innangengt í bílskúrinn.

Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Drykkurinn „Irish carbomb“ sagður vera svívirða

Drykkurinn „Irish carbomb“ sagður vera svívirða
Fókus
Fyrir 2 dögum

Adam Sandler sendir hinni barnlausu Jennifer Aniston blóm á hverjum mæðradegi

Adam Sandler sendir hinni barnlausu Jennifer Aniston blóm á hverjum mæðradegi
Fókus
Fyrir 4 dögum

Patrekur Jamie ætlar að kjósa flokkinn sem er tilbúinn að lofa þessu – „Hvað er að frétta?“

Patrekur Jamie ætlar að kjósa flokkinn sem er tilbúinn að lofa þessu – „Hvað er að frétta?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Setur í ljósi sögunnar spurningarmerki við yfirlýsingu RÚV – „Hefur hvorki fjallað um málið né birt tilkynningu“

Setur í ljósi sögunnar spurningarmerki við yfirlýsingu RÚV – „Hefur hvorki fjallað um málið né birt tilkynningu“
Fókus
Fyrir 1 viku

Uppselt á afmælistónleika Stefáns Hilmarssonar – Aukatónleikar degi síðar

Uppselt á afmælistónleika Stefáns Hilmarssonar – Aukatónleikar degi síðar
Fókus
Fyrir 1 viku

Skotárásin á heimili Rihönnu – Færslur á samfélagsmiðlum geranda sýna stórundarlega hegðun

Skotárásin á heimili Rihönnu – Færslur á samfélagsmiðlum geranda sýna stórundarlega hegðun