fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
Fréttir

Lögregla rannsakar meiriháttar líkamsárás

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 5. mars 2026 07:52

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er með til rannsóknar meiriháttar líkamsárás. Frá þessu er greint í dagbók lögreglu yfir verkefni gærkvöldsins og næturinnar.

Frekari upplýsingar um árásina koma ekki fram en hún átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar 1 sem sinnir meðal annars miðborginni. Fimm aðilar gista fangageymslur lögreglu og eru 48 mál skráð í kerfum lögreglu á tímabilinu frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun.

Í umdæmi lögreglustöðvar 1 var meðal annars tilkynnt um þjófnað í matvöruverslun, árekstur og afstungu og rúðubrot í heimahúsi. Þá hélt lögreglu uppi sérstöku innbrotaeftirliti í hverfum 108 og 104.

Í umdæmi lögreglustöðvar 2 var eigandi bifreiðar sektaður vegna lagningar á ökutæki sínu og þá var tilkynnt um ungmenni vera að kasta snjóboltum í bíla. Hópurinn var farinn af vettvangi þegar lögregla kom.

Í umdæmi lögreglustöðvar 3 var tilkynnt um ölvaðan einstakling í matvöruverslun sem var að áreita fólk. Lögregla skutlaði manninum til síns heima og segir ekki frekar af honum.

Í umdæmi lögreglustöðvar 4 voru skráningarmerki tekin af fjórum bílum þar sem þær voru ekki með tryggingar og loks var tilkynnt um innbrot í heimahús í hverfi 110. Málið er í rannsókn, að sögn lögreglu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Náfrænka bæjarstjóra aftur hrakin frá störfum vegna óánægju – Fær nýja vinnu hjá bænum

Náfrænka bæjarstjóra aftur hrakin frá störfum vegna óánægju – Fær nýja vinnu hjá bænum
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Skilorðsbundinn dómur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Ölveri

Skilorðsbundinn dómur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Ölveri