

Óvissa ríkir enn um hvort vináttulandsleikur Íslands og Mexíkó fari fram aðfaranótt fimmtudags líkt og áætlað hefur verið. Misvísandi fréttir hafa borist af stöðunni, þar sem sumir miðlar telja líklegt að leiknum verði frestað af öryggisástæðum á meðan aðrir halda því fram að hann fari fram samkvæmt áætlun.
Ástæðan fyrir óvissunni eru óeirðir sem brutust út víða í Mexíkó eftir að hersveitir felldu glæpaforingjann Rúben Nemesio Oseguera, betur þekktan sem El Mencho. Hann stýrði einu stærsta skipulagða glæpaneti heims og viðbrögð við dauða hans hafa verið hörð, meðal annars með íkveikjum og vegatálmum.
Vegna ástandsins var deildarleik Querétaro og Juárez frestað nýverið, þó fyrst og fremst til að tryggja öryggi áhorfenda. Yfirvöld vildu ekki standa að stórum viðburði við þessar aðstæður, og gæti það haft áhrif á landsleik Íslands.
Samkvæmt erlendum miðlum á borð við Dailysport og Mirror er hætta á frestun, en ESPN í Mexíkó greinir frá því að leikurinn eigi enn að fara fram. Þar er haft eftir heimildarmanni innan mexíkóska knattspyrnusambandsins að áhorfendur verði leyfðir, þó með mikilli öryggisgæslu lögreglu og hermanna.
Endanleg ákvörðun er þó enn ótekin og frekari tíðinda er að vænta eftir fund yfirvalda síðar í dag.