

Fyrirsætan Abbey Clancy segir að Valentínusardagurinn hennar með eiginmanninum Peter Crouch hafi farið langt frá áætlun eftir óvænta uppákomu.
Abbey, sem hefur verið gift fyrrverandi enska landsliðsframherjanum síðan 2011, ætlaði að koma honum á óvart með sérstökum hætti. Hún hafði keypt sér undirföt og skipulagt að fækka fötum fyrir Crouch, en allt fór úrskeiðis þegar hann hafði sjálfur skipulagt kvöldið.

Í viðtali við The Sun segir hún. „Þetta var versta óvænta uppákoman því ég var í fallegum fatnaði undir kápu og Pete segir: ‘Surprise! Við erum með kokk.’ Ég þurfti því að vera í kápunni allan kvöldverðinn, heima hjá okkur.“
Hún viðurkennir að hafa orðið mjög vandræðaleg yfir aðstæðunum. „Ég var bókstaflega að svitna því ég var svo stressuð.“

Crouch áttaði sig síðar á því hvað var í gangi, en þá var orðið of seint að breyta neinu þar sem einkakokkurinn var mættur og byrjaður að útskýra réttina.
„Þú veist þegar þeir byrja að útskýra matinn, maður er bara: ‘geturðu farið, vinur’,“ sagði Abbey í léttum tón.
Parið, sem á fjögur börn saman, getur þó litið á atvikið sem skemmtilega minningu, þó Valentínusaráformin hafi ekki alveg gengið upp að þessu sinni.