
Mikil ólæti brutust út í bikarúrslitaleik FC Kaupmannahafnar og Midtjylland í Danmörku í gær þegar stuðningsmenn FCK skutu flugeldum og blysum inn á völlinn rétt áður en síðari hálfleikur hófst.
Leikurinn var stöðvaður og leikmenn beggja liða þurftu að hlaupa til búningsklefa á meðan mikinn reyk lagði yfir Parken.
Jacob Lauesen, framkvæmdastjóri FCK, fordæmdi hegðun stuðningsmannanna harðlega eftir leik.
„Þetta er algjörlega óásættanlegt. Nú þarf að komast að því hvernig þessu var komið inn á völlinn og hverjir stóðu á bak við þetta,“ sagði Lauesen.
Hann segir félagið ætla að nýta öflugt eftirlitsmyndavélakerfi vallarins til að bera kennsl á gerendurna og útiloka þá frá leikjum félagsins í framtíðinni.
Midtjylland vann leikinn að lokum 1-0.
Hér að neðan má sjá myndband af látunum.
Skandaløst @FCKobenhavn #sldk #dbupokalen pic.twitter.com/JCcvw06crF
— Jakob Nørgaard (@JakobNoergaard) May 14, 2026