fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
433Sport

Darren Fletcher gjörsamlega hneykslaður

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 15. maí 2026 20:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Darren Fletcher, þjálfari U18-liðs Manchester United, gagnrýndi enska knattspyrnusambandið eftir 2-1 tap gegn Manchester City í úrslitum FA Youth Cup.

Fletcher var ósáttur við hvernig umgjörð úrslitaleiksins var háttað og sagði leikinn hafa verið líkari sýningu fyrir Manchester City en úrslitaleik í bikarkeppni á vegum enska knattspyrnusambandsins.

Leikurinn fór fram á Joie Stadium sem tekur aðeins 6.000 manns en City gat ekki notað Etihad-völlinn vegna framkvæmda. United vildi færa leikinn á Old Trafford en sambandið hafnaði því.

„Ég hef aldrei séð þjálfara og alla leikmenn kynnta sérstaklega upp á svið í bikarúrslitum. Þetta átti að vera keppni á vegum knattspyrnusambandsins, ekki Manchester City-keppni,“ sagði Fletcher eftir leik.

Þrátt fyrir gagnrýnina hrósaði hann City-liðinu og sagði besta liðið hafa unnið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls
433Sport
Í gær

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt