fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
433Sport

Tvö stórlið bíða eftir því hvaða ákvörðun Real Madrid tekur

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 15. maí 2026 18:00

Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Federico Valverde vill halda áfram hjá Real Madrid þrátt fyrir mikinn áhuga frá stærstu félögum Evrópu samkvæmt spænskum miðlum.

Úrúgvæski miðjumaðurinn, sem er 27 ára gamall, hefur verið orðaður við brottför frá spænska stórveldinu undanfarna mánuði eftir ólgu innan félagsins og breytingar sem gætu orðið á leikmannahópnum í sumar.

Samkvæmt AS hefur Valverde þó engan áhuga á að yfirgefa Santiago Bernabéu að svo stöddu og lítur enn á sig sem lykilmann hjá Real Madrid.

Manchester City og Paris Saint-Germain fylgjast þó grannt með stöðu hans og eru sögð tilbúin að gera tilraun til að fá miðjumanninn ef Real ákveður að selja hann.

Valverde hefur verið einn mikilvægasti leikmaður Real Madrid undanfarin ár og er þekktur fyrir fjölhæfni sína, vinnslu og mikla orku á miðsvæðinu.

Real Madrid hefur ekki gefið nein merki um að félagið vilji selja leikmanninn en áhugi frá stærstu liðum Evrópu heldur áfram að aukast fyrir sumargluggann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls
433Sport
Í gær

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt