fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
433Sport

Mbappe tjáir sig um harkalegar móttökur frá stuðningsmönnum

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 15. maí 2026 19:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það var baulað á Kylian Mbappe af stuðningsmönnum Real Madrid þegar hann sneri aftur úr meiðslum í 2-0 sigri á Real Oviedo.

Franski framherjinn kom inn á sem varamaður á 69. mínútu og lagði síðar upp mark fyrir Jude Bellingham, en athyglin beindist helst að viðbrögðum stuðningsmanna á Santiago Bernabeu.

Mbappe sagðist skilja gagnrýnina eftir leikinn.

„Þegar lið vinnur ekki velja stuðningsmenn oft leikmenn til að baula á. Það gerist hjá öllum félögum,“ sagði Mbappe.

Einnig var óánægja meðal stuðningsmanna með forseta félagsins, Florentino Perez. Öryggisverðir fjarlægðu mótmælaborða gegn honum á leiknum og Perez sást síðar í orðaskaki við stuðningsmenn í stúkunni.

Það hefur verið hiti í kringum Real Madrid undanfarið, bæði vegna gengisins á tímabilinu og vegna slagsmála milli liðsfélaganna Aurelien Tchouameni og Federico Valverde á dögunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls
433Sport
Í gær

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt