fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Landsliðið mætt til Mexíkó – Tölfræðin ekki okkur í hag

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 23. febrúar 2026 09:30

Landsliðið í Mexíkó. Mynd: KSÍ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eftir langt ferðalag mætti karlalandsliðið til Queretaro í Mexíkó um helgina, þar sem íslenska liðið mætir Mexíkóum í vináttuleik í komandi viku.

Leikurinn er sem kunnugt er utan hefðbundins landsleikjaglugga og því er hópurinn að mestu skipaður leikmönnum sem eru á mála hjá íslenskum félagsliðum. Þó eru þar einnig Jóhann Berg Guðmundsson, sem varð samningslaus í Sameinuðu arabísku furstadæmunum á dögunum, og Kolbeinn Þórðarson, sem spilar í Svíþjóð.

Ísland og Mexíkó hafa fimm sinnum áður mæst í A-landsliðum karla, í öllum tilfellum vináttuleikir á erlendri grundu. Fyrstu tveimur viðureignunum lauk báðum með markalausu jafntefli og næstu þremur með mexíkóskum sigri. Liðin mættust síðast í lok maí 2021 í Arlington, Texas þar sem Mexíkó vann 2-1 sigur.

Leikurinn, sem fer fram á Corregidora Stadium í Queretaro, hefst kl. 20:00 að staðartíma miðvikudaginn 25. febrúar, sem er kl. 02:00 aðfaranótt fimmtudagsins hér á landi.  Leikurinn verður í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Sýn.

Leikmannahópur Mexíkó

Leikmannahópur Íslands

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Svona er lið umferðarinnar í Bestu deildinni

Svona er lið umferðarinnar í Bestu deildinni
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Segir yfirmenn sína styðja sig þrátt fyrir hörmulegt gengi undanfarið

Segir yfirmenn sína styðja sig þrátt fyrir hörmulegt gengi undanfarið
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Ógeðfelldar frásagnir: Sakaður um að brjóta á drengjum í starfi sínu – Kom sér í stöðu sjúkraþjálfara til að komast nær þeim

Ógeðfelldar frásagnir: Sakaður um að brjóta á drengjum í starfi sínu – Kom sér í stöðu sjúkraþjálfara til að komast nær þeim
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Nokkuð óvænt orðaður við Manchester United

Nokkuð óvænt orðaður við Manchester United