fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Gæsahúðarræða sjónvarpskonunnar vekur mikla athygli – „Þetta er rétt gegn röngu“

433
Fimmtudaginn 19. febrúar 2026 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjónvarpskonan Kate Scott hóf umfjöllun CBS Sports um Meistaradeildina í gær með áhrifaríkum orðum eftir meint kynþáttaníð í garð Vinicius Junior.

Vinicius skoraði sigurmarkið þegar Real Madrid vann 1-0 útisigur á Benfica í fyrri leik liðanna í umspili Meistaradeildarinnar. Leikurinn féll þó í skugga meints kynþáttaníðs í hans garð af hálfu Gianluca Prestianni.

„Þetta er ekki Real Madrid gegn Benfica. Þetta er rétt gegn röngu. Það ætti ekki að hafa áhrif á þína skoðun hvort þér líki við Vinicius eða ekki,“ sagði Scott meðal annars.

„Ef þú þarft að hylja munninn til að fela það sem þú segir, þá veistu að það er rangt,“ sagði Scott, en Prestianni gerði einmitt það.

Scott gagnrýndi þá viðbrögð manna eins og Jose Mourinho, sem nú stýrir Benfica, sem gaf í skyn að Vinicius hafi kallað níðið yfir sig með því að fagna of dátt.

Málið er nú til rannsóknar hjá UEFA, en hér að neðan má sjá eldræðu Scott.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal

Nýjar upplýsingar flækja stöðu Arsenal
433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

FH neitaði að klára leikinn vegna veðurs

FH neitaði að klára leikinn vegna veðurs