fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Baðst afsökunar en það dugði ekki til – Tekinn af lífi 20 árum eftir ódæðisverkið

Pressan
Föstudaginn 13. febrúar 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður sem játaði að hafa orðið tveimur ungum mönnum að bana í skotárás úr bíl árið 2006 var tekinn af lífi með banvænni lyfjablöndu í Oklahoma í Bandaríkjunum í gær. Aftakan var sú fyrsta sem framkvæmd er í ríkinu á árinu.

Fanginn, hinn 45 ára gamli Kendrick Simpson, var úrskurðaður látinn klukkan 10:19 að staðartíma í gærmorgun. Málið vakti talsverða athygli vestanhafs, ekki síst vegna játningar Simpsons og ágreinings um hvort dauðarefsing ætti við í hans tilviki.

Simpson var sakfelldur fyrir morðin á Anthony Jones, 19 ára, og Glen Palmer, 20 ára, í janúar árið 2006.

Atburðarásin hófst með átökum milli Simpsons og félaga hans annars vegar og Jones, Palmers og fylgdarliðs þeirra hins vegar á skemmtistað þetta kvöld. Í kjölfarið veitti bíll, sem Simpson var farþegi í, bifreið fórnarlambanna eftirför og skaut Simpson um tuttugu skotum inn í hana. Jones og Palmer létust af sárum sínum en þriðji maðurinn, sem einnig var í bílnum, lifði árásina af.

Á náðunarfundi í síðasta mánuði játaði Simpson verknaðinn opinberlega og bað fjölskyldur fórnarlambanna afsökunar. Í ávarpi sínu sagðist hann ekki ætla að færa fram neinar afsakanir, né kenna öðrum um. „Þeir áttu þetta ekki skilið,“ sagði hann meðal annars.

Þrátt fyrir afsökunarbeiðnina hafnaði fimm manna náðunar- og reynslulausnarnefnd Oklahoma, með naumum meirihluta, með því að mæla með náðun. Á miðvikudag hafnaði svo Hæstiréttur Bandaríkjanna síðbúinni áfrýjun lögmanna Simpsons um að stöðva framkvæmd dómsins.

Lögmenn Simpsons höfðu byggt málflutning sinn á því að skjólstæðingur þeirra þjáðist af áfallastreituröskun vegna margvíslegra áfalla í æsku. Í náðunarbeiðni sögðu þeir dauðarefsingu eiga að gilda fyrir „verstu brotin og verstu brotamennina“ og héldu því fram að mál Simpsons félli ekki undir þá skilgreiningu.

Aftakan í Oklahoma var sú önnur sem framkvæmd var í Bandaríkjunum það sem af er ári.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu