fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Vill ekki fara frá United þrátt fyrir fá tækifæri

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 31. janúar 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Joshua Zirkzee vill vera áfram hjá Manchester United út yfirstandandi tímabil þrátt fyrir orðróm um möguleg félagaskipti á næstu dögum. Framherjinn hefur verið orðaður við endurkomu til Ítalíu þar sem Roma er sagt fylgjast grannt með stöðu hans.

Hinn 24 ára gamli Joshua Zirkzee hefur þó sjálfur lýst yfir vilja til að halda áfram á Old Trafford og berjast fyrir sæti sínu í liðinu.

Áður hefur komið fram að forráðamenn United hafi ekki áhuga á að leyfa lykilleikmönnum að fara í janúarglugganum og umboðsmenn Zirkzee fengu skýr skilaboð um að félagið hygðist ekki samþykkja brottför á miðju tímabili.

Zirkzee hefur misst af síðustu tveimur leikjum vegna meiðsla en er nú kominn aftur á æfingar og gæti verið í leikmannahópnum þegar United tekur á móti Fulham í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Hann vonast til að nýta tækifærið og festa sig betur í sessi á komandi vikum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“