fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Svona endaði allt í Meistaradeildinni: Mourinho skákaði Real og fór áfram – Viktor Bjarki skoraði gegn Barca – Þessi lið fara áfram

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 28. janúar 2026 22:06

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það var líf og fjör í Meistaradeild Evrópu í kvöld þar sem 16 leikir fóru fram. Formlegri riðlakeppni er lokið.

Mesta dramatíkin var í leik Benfica og Real Madrid en á 98. mínútu skoraði markvörðurinn, Trubin og tryggðði liðinu 4-2 sigur. Með sigrinum skaust Benfica upp í 24 sæti og tryggði sér sæti í umspili um miða í 16 liða úrslit.

Allir aðrir leikir vor búnir og Benfica fór þar upp fyrir Marseille.

Napoli er úr leik eftir tap gegn Chelsea á heimavelli, meistararnir frá Ítalíu voru ekki eitt af 24 efstu liðunum í ár.

Liverpool fór hamförum gegn Qarabag og vann 6-0 sigur, Mo Salah, Hugo Ekiteke, Federico Chiesa, og Florian Wirtz skoraði eitt og Alexis Mac Allister setti tvö.

Viktor Bjarki Daðason skoraði eitt mark í tapi FCK gegn Barcelona. Viktor er 17 ára og er yngsti leikmaðurinn til að skora gegn Barcelona á Nou Camp í Meistaradeildinni. FCK komst yfir með marki Viktors en reið ekki feitum hesti og missti það niður í síðari hálfleik. FCK er úr leik.

Fimm ensk lið eru á meðal efstu átta liða sem fara beint í sextán liða úrslit, Tottenham vann Frankfurt í kvöld og er þar, Manchester City vann sigur á Galatasaray og er þar og sömuleiðis Arsenal sem vann Kairat Almaty 3-1. Þar skoruðu Viktor Gyokeres, Kai Havertz og Gabriel Martienlli í 3-1 sigri.

Newcastle gerði 1-1 jafntefli gegn PSG en bæði lið enda utan efstu átta liða og fara í umspil. PSG vann Meistaradeildina síðasta vor.

Arsenal vann alla átta leikina í deildinni.

Norska liðið Bodo/Glimt vann ótrúlegan 1-2 sigur á Atletico Madrid og kemst í umspil um sæti í 16 liða úrslitum.

Hér að neðan eru liðin sem fara áfram:

Staðfest í 16 liða úrslit:
Arsenal
FC Bayern
Liverpool
Tottenham
Barcelona
Chelsea
Sporting
Manchester City

Fara í umspil:
Real Madrid
Inter
PSG
Newcastle
Juventus
Atletico Madrid
Atalanta
Bayer Leverkusen
Dortmund
Olympiacos
Club Brugge
Galatasaray
AS Monaco
Qarabag
Bodo Glimt
Benfica

Úr leik:
Marseille
PAFOS
Union St.
PSV
Athletic
Napoli
FCK
Ajax
Frankfurt
Slavia Prag
Villarreal
Kairat Almaty

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Nefna leiðir sem Ísland getur farið til að særa Evrópumeistarana

Nefna leiðir sem Ísland getur farið til að særa Evrópumeistarana
433Sport
Í gær

Svona er tölfræði Íslands gegn Englandi

Svona er tölfræði Íslands gegn Englandi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fer til Tottenham ef liðið bjargar sér frá falli

Fer til Tottenham ef liðið bjargar sér frá falli
433Sport
Fyrir 2 dögum

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola
433Sport
Fyrir 2 dögum

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu
433Sport
Fyrir 2 dögum

Victoria Beckham tjáir sig í fyrsta sinn um fjölskylduharmleikinn – „Höfum alltaf reynt að vernda þau“

Victoria Beckham tjáir sig í fyrsta sinn um fjölskylduharmleikinn – „Höfum alltaf reynt að vernda þau“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést