fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Hátt fall United á lista yfir tekjuhæstu félög heim – Liverpool borgar mest í laun á Englandi

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 22. janúar 2026 11:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United hefur fallið út fyrir efstu fimm sætin á lista Deloitte yfir tekjuhæstu knattspyrnufélög heims, eftir tímabil án Evrópukeppni. Þetta er enn eitt áfallið fyrir félagið á Ineos-tímabilinu á Old Trafford.

Í 29 ár í röð hefur United verið meðal tekjuhæstu félaga heims samkvæmt árlegum Football Money League lista Deloitte, en nú situr félagið í áttunda sæti. Tekjur United eru nú meira en 300 milljónum punda lægri en hjá toppliði listans, Real Madrid.

Spænska stórveldið var tekjuhæsta félag heims annað árið í röð og varð á síðasta ári fyrst félaga til að fara yfir einn milljarð evra í tekjur. Í nýjustu skýrslunni nema tekjur Real Madrid 1,01 milljarði punda, á meðan Manchester United skilaði 692 milljónum punda.

Launakostnaður Real Madrid er þó töluvert hærri, eða 446 milljónir punda, samanborið við 353 milljónir hjá United. Þá eru blikur á lofti fyrir næstu skýrslu, þar sem tekjur United af leikdögum, sem námu 166 milljónum punda, gætu lækkað verulega vegna snemmbúinna bikarúrsagna og skorts á Evrópuleikjum.

Samkvæmt Deloitte er Liverpool það félag á Englandi sem greiðir mest í laun.

Tekjur af markaðs- og styrktarsamningum eru þó áfram sterkar, en United aflaði 346 milljóna punda í þeim flokki. Tim Bridge hjá Deloitte telur þó að staða félagsins sé ekki varanleg og bendir á að Manchester United sé enn eitt stærsta vörumerki knattspyrnunnar á heimsvísu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Liverpool setti met í gær – Vantar aðeins tvo staði upp á

Liverpool setti met í gær – Vantar aðeins tvo staði upp á
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

De Gea aftur til Englands?

De Gea aftur til Englands?
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir viðburðaríka helgi – Þungt fyrir bæði liðin í norðurhluta London

Ofurtölvan stokkar spilin eftir viðburðaríka helgi – Þungt fyrir bæði liðin í norðurhluta London
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Þurftu að slökkva á hljóðnemanum í viðtali við Haaland í gær – Myndband

Þurftu að slökkva á hljóðnemanum í viðtali við Haaland í gær – Myndband
433Sport
Fyrir 2 dögum

Góð frammistaða Íslands gegn Evrópumeisturunum dugði ekki til

Góð frammistaða Íslands gegn Evrópumeisturunum dugði ekki til
433Sport
Fyrir 2 dögum

„Ég er auðvitað mjög náin henni og þetta er einhver hógværasta manneskja sem ég hef kynnst“

„Ég er auðvitað mjög náin henni og þetta er einhver hógværasta manneskja sem ég hef kynnst“