fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

KSÍ staðfestir landsleikina tvo í lok mars

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 20. janúar 2026 17:05

Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

KSÍ hefur staðfest að íslenska karlalandsliðið muni mæta Kanada og Haítí í lok mars.

Leikurinn gegn Kanada verður 28. mars og leikurinn við Haítí þremur dögum síðar. Fara þeir báðir fram í Kanada.

Áður en að þessu kemur mun Ísland spila við Mexíkó ytra í lok febrúar. Það er ekki innan opinbers landsleikjaglugga og má búast við því að leikmenn úr Bestu deildinni skipi hópinn í því verkefni.

Af vef KSÍ
KSÍ getur nú staðfest að A landslið karla muni leika tvo vináttulandsleiki í Kanada í komandi mars-leikjaglugga, þar sem íslenska liðið mætir Kanada og Haítí. Áður hafði verið tilkynnt um vináttuleik við Mexíkó í mexíkósku borginni Queretaro 25. febrúar, en sá leikur er ekki í FIFA-glugga.

Vináttuleikirnir við Kanada og Haítí eru hluti af leikjaseríu fjögurra þjóða þar sem hver þjóð leikur tvo leiki. Kanada, Haítí og Túnis eru á meðal þátttökuþjóða í úrslitakeppni HM 2026 í Norður-Ameríku.

Laugardagur 28. mars: Kanada – Ísland
Laugardagur 28. mars: Túnis – Haítí
Þriðjudagur 31. mars: Haítí – Ísland
Þriðjudagur 31. mars: Kanada – Túnis

Allir fjórir leikirnir fara fram á Canada BMO Field leikvanginum í Ontario – tveir leikir á dag á sama leikvanginum (leiktímar liggja ekki fyrir).

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Liverpool setti met í gær – Vantar aðeins tvo staði upp á

Liverpool setti met í gær – Vantar aðeins tvo staði upp á
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

De Gea aftur til Englands?

De Gea aftur til Englands?
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir viðburðaríka helgi – Þungt fyrir bæði liðin í norðurhluta London

Ofurtölvan stokkar spilin eftir viðburðaríka helgi – Þungt fyrir bæði liðin í norðurhluta London
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Þurftu að slökkva á hljóðnemanum í viðtali við Haaland í gær – Myndband

Þurftu að slökkva á hljóðnemanum í viðtali við Haaland í gær – Myndband
433Sport
Fyrir 2 dögum

Góð frammistaða Íslands gegn Evrópumeisturunum dugði ekki til

Góð frammistaða Íslands gegn Evrópumeisturunum dugði ekki til
433Sport
Fyrir 2 dögum

„Ég er auðvitað mjög náin henni og þetta er einhver hógværasta manneskja sem ég hef kynnst“

„Ég er auðvitað mjög náin henni og þetta er einhver hógværasta manneskja sem ég hef kynnst“