

Vignir Vatnar Stefánsson er skærasta stjarna Íslands í skák. Þrátt fyrir að vera aðeins 22 ára gamall, hefur landað hinum eftirsótta stórmeistaratitli og stefnir hátt í þessari virtu hugaríþrótt hefur löngum verið Íslendingum kær. Það vakti til að mynda mikla athygli þegar Vignir lagði sjálfan Magnus Carlsen, sem flestir telja sterkasta skákmann sögunnar, í afar öflugu netmóti í apríl á síðasta ár sem var svo sannarlega vísbending um að Vignir gæti velgt þeim bestu undir uggum.
Þrátt fyrir að allt gangi Vigni í haginn á reitunum sextíu og fjórum þá hefur líf hans síður en svo verið dans á rósum. Hann glímdi við lífshættulegt þunglyndi á táningsárum sínum en fann tilgang sinn í skáklistinni.
Vignir er nýjasti gestur Frosta Logasonar í viðtalsþætti hans á hlaðvarpsveitunni Brotkast. Þar opnar hann sig um bróðurmissi og andlega erfiðleika sem hrjáðu hann og náðu hámarki árið 2020, þegar hann var aðeins 16 ára gamall. Þá var þunglyndið orðið grafalvarlegt og hann hafði hreinlega ákveðið að lífið væri ekki þess virði að lifa því lengur. Svartnættið var algjört og hann hafði gengið svo langt að ákveða dagsetningu.
„Það er náttúrulega alveg galið að segja frá því núna. Ég er svo hamingjusamur að það í rauninni skín af mér. Mér líður svo vel og ég er svo ánægður með lífið,“ segir Vignir.
Hann segist hafa ákveðið að deila sögu sinni því að hann upplifi það sjálfur að mörgum líði illa andlega og því sé mikilvægt að ræða hlutina opinskátt svo fólk upplifi ekki skömm þegar það glímir við slíkar áskoranir.
Vignir segir að andlegri líðan hans hafi hrakað smátt og smátt á unglingsárunum. „Það var mikið niðurrif og ég braut sjálfan mig niður trekk í trekk. Mér leið illa með sjálfan mig,“ segir skákmeistarinn.
Ættgeng baugu undir augum hans hafi valdið honum vanlíðan og þá hafi hann verið í slæmu líkamlegu formi sem jók vandann.
Ástandið orðið svo slæmt að Vignir var búinn að ákveða dagsetningu þar sem hann ætlaði að binda enda á andlegar þjáningar sínar.
Á ögurstundu náði hins vegar einn af hans bestu vinum að grípa inn í eftir að hafa skynjað vanlíðan vinar síns og segir Vignir að hann brotnað niður og hágrátið þegar hann gat sagt vini sínum frá í hverslags óefni var komið.
Þetta inngrip vinarins bjargaði honum og daginn eftir hafi Vignir, sem þá þegar var einn efnilegasti skákmaður landsins, ákveðið að finna sér tilgang með því að taka skákina fastari tökum en nokkru sinni fyrr.
„Þá byrjaði ég bara á skák og tók sko 10 til 14 tíma á dag. Ég sleppti ekki einum degi,“ segir Vignir.
Fljótlega fann hann að vinnan fór að bera árangur. Hann hækkaði um 200 Elo-stig á aðeins einu ári og landaði tveimur stórmeistaraáföngum. Titilllinn eftirsótti var skyndilega innan seilingar.
Í viðtalinu segir Vignir að þessi tilgangur sem hann hafi fundið í skákinni hafi verið lykillinn að andlegum bata hans og þeir sem séu í sömu sporum og hann var verði að finna slíkan tilgang.
„Það verður að hafa tilgang og verður að elta eitthvað. Ég veit ekki hvað það er, það getur verið hvað sem það er fyrir hvern sem er. En fyrir mig, þá var það stórmeistaratitillinn,“ segir Vignir.
Það var því stór stund þegar stórmeistaratitilinn kom í hús í mars 2023 og samhliða því fór Vignir að leggja áherslu á líkamsrækt sem hann segir að hafi skipt sköpum.
„Þetta bara gjörsamlega breytti lífinu mínu, bara þessir tveir hlutir,“ segir Vignir. Þá hafi hann upplifað að betri líðan og jákvæðara viðhorf hafi gert það að verkum að ýmsir hlutir fóru að falla með honum.
Í viðtalinu opnar skákmeistarinn sig líka um sáran bróðurmissi sem hann varð fyrir en eldri bróðir hans lést aðeins 19 ára gamall þegar Vignir Vatnar var sjálfur aðeins sjö ára að aldri.
Hér má sjá brot úr viðtalinu við afreksmanninn unga:
Í þessari frétt er fjallað um þunglyndi og sjálfsvíg. Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa samband við Píeta-samtökin sem veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.