fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Ragnheiður fékk heilablóðfall á Spáni – „Á ótrúlegan hátt náði hún að bjarga sér“

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 13. janúar 2026 07:42

Ragnheiður Steindórsdóttir. Mynd: Þjóðleikhúsið.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragnheiður Steindórsdóttir leikkona féll heilablóðfall á Spáni rétt fyrir áramót og hefur legið á spítala þar síðan. Það liggur fyrir að hún komi heim í læknisfylgd í dag. Börn Ragnheiðar greina frá og biðla til almennings að styðja Vonarbrú meðan móðir þeirra nær heilsu á ný.

„Hún varð því miður fyrir því óláni að missa máttinn þegar hún var ein í gönguferð í sveitinni á Spáni á milli jóla og nýárs. Á ótrúlegan hátt náði hún að bjarga sér, vekja athygli íbúa á svæðinu og fá hjálp. Hún var flutt á spítala í Malaga í fylgd með Steindóri og þar kom í ljós að hún hafði fengið heilablóðfall,“

segir í færslu sem sonur Ragnheiðar, Steindór Grétar Jónsson skrifar fyrir hennar hönd.

„Mamma er alveg skýr í kollinum og enn hún sjálf eins og við þekkjum hana en þarf tíma og þjálfun til að endurheimta kraft í líkamanum. Hún verður flutt til Íslands á morgun í fylgd með lækni og Steindóri og hlakkar til að takast á við endurhæfinguna framundan. Það verður líka gott að geta talað við heilbrigðisstarfsfólk á íslensku þó að mömmu hafi nánast tekist að læra spænsku frá grunni á þessum tveimur vikum á sjúkrahúsinu.“

Steindór segir að allir sem þekki móður hans viti hún hefur verið virk, öflug og lífsglöð og að hún hafi látið sig málefni Palestínu varða með félaginu Vonarbrú.

„Með ósérhlífnu starfi hefur henni tekist með samstarfsfólki sínu og þeim sem styrkt hafa félagið að veita fjölda fjölskyldna á Gaza lífsbjörg. Við vitum að það mundi gleðja hana ef Vonarbrú fengi góð fjárframlög næstu vikurnar til að bæta upp fyrir fjarveru hennar. Við hvetjum því öll til að styrkja stríðshrjáðar barnafjölskyldur á Gaza með því að leggja inn á reikning almannaheillafélagsins Vonarbrúar.“

Vonarbrú
Kennitala: 420625-1700
Reikningsnúmer: 0565-26-006379

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þarf ekki að borga fyrrverandi stjúpföður sínum fyrir að taka íbúðina í gegn – Skilnaður setti allt í bál og brand

Þarf ekki að borga fyrrverandi stjúpföður sínum fyrir að taka íbúðina í gegn – Skilnaður setti allt í bál og brand
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Landsréttur leggur línurnar – Akureyringur mátti kalla fyrrverandi eiginkonu sína „tussu“ en ekki „svertingjatussu“

Landsréttur leggur línurnar – Akureyringur mátti kalla fyrrverandi eiginkonu sína „tussu“ en ekki „svertingjatussu“