fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Orðið á götunni: Raunveruleikaflótti þingmanns á jólaföstu

Eyjan
Laugardaginn 20. desember 2025 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Valdafráhvarf hefur leikið þingmanninn Guðlaug Þór Þórðarson grátt upp á síðkastið. Það er alþekkt að fyrrverandi ráðherrar sem halda áfram á þingi eiga margir hverjir afar erfitt með að fóta sig í þeim dapra raunveruleika að völdin séu frá þeim horfin, í hendurnar á pólitískum andstæðingum, og ekkert blasi annað við en nöldrandi stjórnarandstaða. Það er hundleiðinlegt hlutverk og verður þungbært þeim sem hafa ekki þroska til að horfast í augu við veruleikann og haga sér í samræmi við það. Vitanlega er miklu áhugaverðara fyrir stjórnmálamenn að hafa völd og áhrif og njóta þeirrar virðingar sem ráðherradómi og völdum fylgir. Guðlaugur Þór þekkir samanburðinn af eigin raun, enda átti hann sæti í vinstri stjórn Katrínar Jakobsdóttur, formanns sósíalistaflokksins Vinstri grænna, sem þurrkaðist út af þingi í síðustu kosningum.

Orðið á götunni er að átakanlegt hafi verið að fylgjast með tilburðum Guðlaugs Þórs, og reyndar fleiri fyrrverandi ráðherra, það sem af er ári. Sumir þeirra hafa átt í miklum vandræðum með að horfast í augu við þá staðreynd að þeim og flokkum þeirra var hafnað í kosningunum fyrir ári, nýir stjórnmálamenn voru valdir til að taka við völdum af þeim og það í lýðræðislegum kosningum þar sem vinstri stjórn þeirra fékk makleg málagjöld og var hafnað. Ekkert valdarán fór fram og það er ekki ófrávíkjanleg regla að Sjálfstæðisflokkurinn eigi að stjórna hver sem vilji kjósenda kann að vera. Þess er alla vega ekki getið í stjórnarskránni.

Guðlaugur Þór er einn reyndasti stjórnmálamaður landsins og þar af leiðandi er eðlilegt að til hans séu gerðar ríkar kröfur um yfirvegaða framkomu. Því var ekki að heilsa í liðinni viku þegar hann lét sér sæma að ávarpa forsætisráðherra landsins svona: „Hæstvirtur yfirlætismálaráðherra, nei afsaki forsætisráðherra …“ Á hvaða plani er kjánaskapur af þessu tagi hjá reyndum og farsælum stjórnmálamanni eins og Guðlaugur Þór hefur verið lengst af? Svona framkoma lýsir engu nema vanlíðan þess sem í hlut á en skaðar ekki þann sem var uppnefndur. Húmor af þessu tagi væri í besta falli boðlegur í gagnfræðaskóla.

Orðið á götunni er að það sé sorglegt að lesa skrif Guðlaugs Þórs sem birtast í Morgunblaðinu í dag. Þar virðist hann hlýða fyrirmælum Skrímsladeildarinnar sem hefur ekki haft önnur ráð en þau að hvetja talsmenn flokksins til að staglast á „skattahækkunum“, hvort sem um skattahækkanir er að ræða eða ekki og svo því að miðjustjórn Kristrúnar Frostadóttur sé „vinstri stjórn.“ Fáir íslenskir stjórnmálamenn vita betur en Guðlaugur Þór hvað vinstri stjórn er því að hann átti sæti í einni slíkri í sjö ár, í vinstri stjórn Katrínar Jakobsdóttur sósíalistaleiðtoga, formanns Vinstri grænna. Ríkisstjórn undir forsæti og forystu sósíalistaleiðtoga er ekkert annað en vinstri stjórn. Sjálfstæðisflokkurinn var burðarás í þeirri stjórn í sjö ár og galt fyrir það í síðustu kosningum þegar fylgi flokksins fór niður í 19 prósent, hið minnsta í sögunni, og flokkurinn missti völdin þegar honum og samstarfsflokkum hans var hafnað. Tal um að miðjustjórn Kristrúnar Frostadóttur sé eitthvað annað en miðjustjórn er vitanlega innantómt og innistæðulaust með öllu. Sjálfstæðismenn verða áfram að bíta úr nálinni með þau mistök sín að halda sósíalistunum, Vinstri grænum, við völd í sjö ár þar til kjósendur tóku til sinna ráða og vísuðu þeim á dyr stjórnarráðsins. Því verða þeir að una enn um sinn – og trúlega í býsna langan tíma.

Stagl minnihlutans á Alþingi um skattahækkanir er annað dæmi um málefnafátækt og pólitíska uppgjöf. Í grein sinni í Morgunblaði dagsins birtast kunnuglegar upphrópanir um skattahækkanir eins og þar hafi verið gengið fram af offorsi. Hinum reynda þingmanni Guðlaugi Þór er fullkunnugt um að breyting á gjaldtöku af umferðinni er vegna kerfisbreytinga og var óhjákvæmileg. Sú breyting sem nú hefur verið innleidd var undirbúin af vinstri stjórninni þar sem Guðlaugur Þór átti sæti. Þeirri stjórn vannst ekki tími til að afgreiða breytinguna vegna þess að hún hrökklaðist frá völdum með skömmum fyrirvara. Reyndar kom sú stjórn fáu í verk, sem líkast til er lán í óláni. Þá hefur minnihlutinn hrópað hátt um að breytingin á innheimtu veiðigjalds sé skattahækkun. Guðlaugur Þór hlýtur að vita að veiðigjöld eru frádráttarbær rekstrarkostnaður þeirra fyrirtækja sem greiða afnotagjald fyrir afnot af fiskveiðiauðlindinni sem þeir eiga ekki sjálfir. Það jafngildir því að greiða húsaleigu fyrir afnot af húsnæði sem notandi á ekki sjálfur. Í báðum tilvikum er um að ræða frádráttarbæran rekstrarkostnað. Skattar eru ekki frádráttarbærir. Þeir eru annars eðlis.

Í grein sinni heldur Guðlaugur Þór því fram að núverandi ríkisstjórn hafi tekið við góðu búi. Það er hraustlega gert af honum að halda því fram. Fyrri ríkisstjórn réði ekkert við gríðarlegan fjárlagahalla, hún réði ekki við að lækka verðbólgu og vexti, hún réði ekki við að semja um vanda ÍLS sjóðanna sem veltist árum saman með vaxandi þunga innan ríkiskerfisins, fyrri ríkisstjórn gat ekki selt hlutabréf í Íslandsbanka án þess að þáverandi fjármálaráðherra þyrfti að segja af sér því embætti og skáka sér í annan ráðherrastól, raforkuframleiðsla var í stóru stoppi og ekki þarf að hafa mörg orð um uppsafnaða innviðaskuld í samgöngumálum enda skildi vinstri stjórn Katrínar við vegakerfið í óttalegu lamasessi.

Orðið á götunni er að miðjustjórn Kristrúnar Frostadóttur hafi ekki tekið við góðu búi – heldur hálfgerðu þrotabúi – en sé strax byrjuð með afgerandi hætti að taka til og bæta stöðuna á fyrsta ári sínu. Full ástæða er til bjartsýni um framhaldið eftir að samstiga ríkisstjórn er farin að taka til hendi.

Guðlaugi Þór Þórðarsyni eru sendar góðar hátíðarkveðjur með von um að hann megi nýta jólaleyfi til að jafna sig og sjá ljósið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Íris og Páll hætta bæði í Eyjum

Íris og Páll hætta bæði í Eyjum
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi