fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
433Sport

Þetta er það sem Ronaldo sagði við Heimi í reiðiskasti í kvöld

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 13. nóvember 2025 23:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Írland vann frækinn 2-0 sigur á Portúgal í undankeppni EM í kvöld, en Heimir Hallgrímsson er þjálfari liðsins. Cristiano Ronaldo var rekinn af velli og virtist kenna Heimi um það. Heimir var spurður út í þetta eftir leik.

Bæði mörk Íra komu í fyrri hálfleik en eftir klukkutíma leik fékk Ronaldo sitt fyrsta rauða spjald í sögunni með Portúgal. Ronaldo fékk rauða spjaldið fyrir að slá til leikmanns Írlands.

Meira
Ronaldo reiður Heimi Hallgrímssyni í kvöld: Fékk rautt spjald fyrir að slá til manns – Labbaði svo að Heimi og skammaði hann

Fyrir leik hafði Ronaldo svarað Heimi en eftir fyrri leik liðanna sagði Heimir að Ronaldo hefði stjórnað dómaranum í fyrri leik liðanna. „Ég tel að hann sé með þessu bara að reyna að hafa áhrif á dómarann í leiknum á morgun. Án efa. Hann er sniðugur maður,“ sagði Ron­aldo fyrir leikinn.

„Hann sagði við mig á leiðinni út af að þetta hafi verið sniðugt af mér,“ sagði Heimir eftir leik um uppþot Ronaldo í kvöld.

„Þetta hafði samt ekkert með mig að gera, nema ég hafi komist inn í hausinn á honum. Gjörðir hans á vellinum urðu til þess að hann fékk rautt spjald,“ sagði hann enn fremur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Slot óttast að Salah hafi spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool

Slot óttast að Salah hafi spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

FH-ingar segja fréttir kvöldsins ekki réttar – „Allt var þetta gert í samstarfi við Nike“

FH-ingar segja fréttir kvöldsins ekki réttar – „Allt var þetta gert í samstarfi við Nike“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Sökuð um mjög alvarlega hluti – Grunuð um fíkniefna og vændisbrot

Sökuð um mjög alvarlega hluti – Grunuð um fíkniefna og vændisbrot
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Besta deildin: KR heldur áfram að skemmta fólki – Vörn ÍBV míglak í heimsókn til Fram

Besta deildin: KR heldur áfram að skemmta fólki – Vörn ÍBV míglak í heimsókn til Fram
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Tottenham og Úlfarnir á eftir sama leikmanninum

Tottenham og Úlfarnir á eftir sama leikmanninum
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Xavi segir ástæðuna fyrir því að Messi sneri ekki aftur afar einfalda

Xavi segir ástæðuna fyrir því að Messi sneri ekki aftur afar einfalda