fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Jón Skafti ráðinn forstöðumaður erlendra viðskipta hjá Póstinum

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 8. október 2025 08:20

Jón Skafti. Mynd: Pósturinn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Skafti Kristjánsson hefur verið ráðinn forstöðumaður erlendra viðskipta á viðskiptavinasviði Póstsins þar sem hlutverk hans verður að efla erlend viðskiptasambönd.

„Jón Skafti býr yfir mikilli og dýrmætri reynslu og við hjá Póstinum erum ákaflega ánægð með að fá hann til liðs við okkur,“ segir Eymar Plédel Jónsson, framkvæmdastjóri Viðskiptavinasviðs í fréttatilkynningu.

Jón Skafti kemur til Póstsins frá Icelandair þar sem hann gegndi stöðu sölu- og markaðsstjóra í Norður-Ameríku, með starfsstöð í Boston. Áður hafði hann starfað sem forstöðumaður markaðsdeildar Icelandair, vörumerkjastjóri Icelandair og sem verkefnastjóri hjá Icelandair Cargo. Hann er með meistaragráðu í alþjóðamarkaðsfræði frá Copenhagen Business Scool og B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík.

„Það er heiður að fá tækifæri til að leiða frábært teymi hjá Póstinum á tímum spennandi umbreytinga,“ segir Jón Skafti. „Kjarninn í starfsemi Póstsins er að tengja saman fólk, fyrirtæki og samfélög í gegnum traust dreifikerfi og ég hlakka til að nýta reynslu mína af alþjóðlegum markaðs- og sölumálum til að byggja ofan á þann sterka grunn sem fyrir er og skapa ný tækifæri til vaxtar og samstarfs á alþjóðavísu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Íris og Páll hætta bæði í Eyjum

Íris og Páll hætta bæði í Eyjum
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi