fbpx
Laugardagur 13.desember 2025
433Sport

Umdeild skoðun frá umdeildum manni – Telur að morðið á Kirk sé stærra fyrir söguna en morðið á Martin Luther King

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 26. september 2025 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Joey Barton hefur hleypt af stokkunum mikilli umræðu og hneykslun eftir að hann lýsti því yfir að morðið á Charlie Kirk yrði stærra augnablik í sögunni en morðið á Martin Luther King.

Barton, sem var umdeildur á ferli sínum í ensku úrvalsdeildinni, hefur haldið áfram að vera umdeildur eftir að hann lagði skóna á hilluna og hefur á síðustu árum skapað sér nafn sem einn mest umtalaði og umdeildi sparkspekingur Bretlands.

Í nýjasta þætti af hlaðvarpinu sínu, ‘Common Sense’, sagðist hann telja dauða Charlie Kirk, bandarísks íhaldsmannsvera meiri tímamót í sögunni en morðið á réttindaleiðtoganum Martin Luther King árið 1968. Kirk var mytur á hrottafenginn hátt á dögunum þegar hann var að ræða við háskólanema í Bandaríkjunum.

Martin Luther King á mótmælafundi í Washington.

„Mér finnst dauði Charlie Kirk vera stærra augnablikm meira jarðskjálftaaugnablik í sögunni en morðið á Martin Luther King,“ sagði Barton við þáttastjórnanda sinn.

„Þetta verður minnst af börnum okkar og jafnvel barnabörnum sem eitt stærsta augnablik samtímans og ég held að það sé miklu stærra en King.“

Þegar meðstjórnandinn reyndi að milda ummælin og sagði. „Við vitum það ekki enn, kannski eftir fimm ár,“ sagði hann en Barton hélt áfram.

„Nei, ég skal segja þér af hverju. Kirk var 31 árs gamall, Martin Luther King var, þú veist, 53 ára eða eitthvað.“

En aðdáendur bentu fljótt á alvarlega villu í máli Barton þar sem King var aðeins 39 ára þegar hann var myrtur árið 1968, en ekki 53 eins og Barton hélt fram.

Myndband af umræðunni fór hratt í dreifingu á samfélagsmiðlum þar sem Barton fékk mikla gagnrýni. Einn notandi skrifaði:

„Ó Joey… þú heldur áfram að segja hluti bara til að skapa umræðu og halda þér í sviðsljósinu. Skilurðu í raun hver Kirk var og hver Martin Luther King var og fyrir hvað hann barðist? Vinsamlegast horfðu á myndbönd og lestu bækur eða greinar eftir þá. Þá sérðu að það er engin samanburður.“

Umdeild ummæli Bartons halda áfram að vekja hörð viðbrögð og virðist hann hafa enn einu sinni náð að hrista upp í samfélaginu með yfirlýsingu sem margir líta á sem virðingarleysi og sögulegt vanmat.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kemur Gyokeres til varnar
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Salah snýr aftur

Salah snýr aftur
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Hvetur Salah til að ræða við Messi um lífið og tilveruna í Bandaríkjunum

Hvetur Salah til að ræða við Messi um lífið og tilveruna í Bandaríkjunum
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Mikil reiði í garð FIFA vegna miðaverðs á HM – Kalla eftir breytingu

Mikil reiði í garð FIFA vegna miðaverðs á HM – Kalla eftir breytingu
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Telur að Salah hafi spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool

Telur að Salah hafi spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Axel Óskar tekur slaginn áfram með Aftureldingu í Lengjudeildinni

Axel Óskar tekur slaginn áfram með Aftureldingu í Lengjudeildinni
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Guardiola fjarverandi í dag vegna persónulegra vandamála

Guardiola fjarverandi í dag vegna persónulegra vandamála
433Sport
Í gær

Albert fer yfir daginn þar sem alþjóð frétti af því að hann væri sakaður um nauðgun – „Ég vissi hvað gerðist þetta kvöld“

Albert fer yfir daginn þar sem alþjóð frétti af því að hann væri sakaður um nauðgun – „Ég vissi hvað gerðist þetta kvöld“
433Sport
Í gær

Vilja fá vöðvabúntið aftur heim

Vilja fá vöðvabúntið aftur heim