fbpx
Föstudagur 12.desember 2025
Fréttir

Lögregla sendir ökumönnum skýr skilaboð – Yfir þúsund staðnir að hraðakstri

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 25. september 2025 14:18

Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd/Sigtryggur Ari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sérstakur myndavélabíll lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur verið að störfum við grunnskóla í umdæminu eftir að skólar hófust fyrir skemmstu og mælt hraða ökumanna.

Myndavélabílinn var einnig á ferðinni við grunnskólana í maí og segir lögregla ljóst að ökumenn þurfi að standa sig miklu betur þegar kemur að því að virða leyfðan hámarkshraða.

„Við þessar hraðamælingar í maí og september voru samtals 1.137 ökumenn staðnir að hraðakstri í og við grunnskólana og voru hinir sömu sektaðir fyrir vikið. Í grófasta tilvikinu var um ræða bifreið, sem var ekið á 70 km hraða þar sem leyfður hámarkshraði er 30,“ segir lögregla en gera má ráð fyrir að viðkomandi ökumaður fái sviptingu og háa sekt.

„Um var að ræða alls 38 hraðamælingar og náði vöktunin til 5.048 ökutækja. Brothlutfallið var mishátt, eða lágt, eftir götum en að meðaltali ók rúmlega fimmtungur ökumanna of hratt hverju sinni og það er alls ekki góð niðurstaða,“ segir lögregla.

„Af þessum fyrrnefndu 1.137 ökumönnum voru 984 þeirra staðnir að hraðakstri þar sem leyfður hámarkshraði er 30, en þar var meðalhraði hinna brotlegu 43,5 km/klst. Hinir 153 ökumennirnir óku að meðaltali á 52,5 þar sem er 40 km hámarkshraði og fengu þeir sömuleiðis sekt,“ segir lögregla sem minnir ökumenn að lokum á að aka varlega, ekki síst í námunda við skóla þar sem margir eru á ferli, þar á meðal nýir vegfarendur sem hófu skólagöngu sína í lok sumars.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum
Vilhjálmur til OK
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Furðar sig á sekt vegna skutls og biðar í stæði

Furðar sig á sekt vegna skutls og biðar í stæði
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Sauðdrukkinn jarðýtustjóri dæmdur – Sagðist hafa klárað lítraflösku af vodka í einum teyg

Sauðdrukkinn jarðýtustjóri dæmdur – Sagðist hafa klárað lítraflösku af vodka í einum teyg
Fréttir
Í gær

Íslendingar eyddu þetta miklu á OnlyFans árið 2025

Íslendingar eyddu þetta miklu á OnlyFans árið 2025
Fréttir
Í gær

Lögreglan óskar eftir vitnum að banaslysinu á Vesturlandsvegi

Lögreglan óskar eftir vitnum að banaslysinu á Vesturlandsvegi
Fréttir
Í gær

Áhugavert að fylgjast með viðbrögðum Íslendinga – 70 prósent þjóðarinnar í ofþyngd

Áhugavert að fylgjast með viðbrögðum Íslendinga – 70 prósent þjóðarinnar í ofþyngd
Fréttir
Í gær

Ragnar H. Hall hættur í lögmennsku

Ragnar H. Hall hættur í lögmennsku