Ástarsvik er þegar einhver myndar ástar- eða vinatengsl við þig til þess að geta stolið af þér pening eða persónuupplýsingum. Ólíkt flestum svikum í gegnum internetið, þá er svikahrappurinn tilbúinn að eyða miklum tíma í að sannfæra þig um að treysta sér áður en hann biður þig um pening eða upplýsingar.
Sunneva Birgisdóttir, Thrive leiðbeinandi, varð fyrr á árinu fórnarlamb þessara svika. Í dag situr hún eftir tólf milljónum fátækari og allt traustið farið. Í einlægu viðtali í nýjasta tölublaði Vikunnar segir hún frá atburðarásinni í þeirri von að hún geti vakið athygli á þessum glæpum og þar af leiðandi vonandi komið í veg fyrir að fleiri lendi í þessari hræðilegu reynslu.
Sunneva kynntist manni á netinu og upplifði mjög fljótlega að hún væri að þróa samband með honum. „Ég var með hreinan ásetning um hvað ég vildi og vildi ekki í sambandi og sagði honum það, þessum manni sem ég kynntist á Tinder, sem hann notaði svo síðar gegn mér. Hann mótaði sig 100% að þeirri manneskju sem ég vildi að hann væri. Ég hélt frá byrjun að hann væri með hreinan ásetning af því að hann sýndi lífi mínu áhuga og sagði mér frá sér, hvað hann gerði og hver voru hans áhugamál. Fljótlega vorum við farin að deila lífi hvort annars og þannig fannst mér ég geta treyst honum. Fyrir mér vorum við að byggja grunn að sambandi og hann varð partur af mínu lífi mjög hratt. Ég vissi að hans áhugamál væru „crypto“ eða rafmynt sem hann lék sér með utan síns vinnutíma. Hann sagði mér að hann væri það vel fjárhagslega staddur að hann væri að fara að hætta að vinna. Hann væri því mjög upptekinn við að ljúka við síðustu samningana og fá fólk að utan til að taka við af sér. Hann ætlaði að hitta mig mánuði eftir að við áttum okkar fyrstu samskipti. Ég fékk hann þó til að hitta mig fyrr, sem varð hins vegar aldrei úr.“
Það sem bjargaði Sunnevu svo endanlega út úr þessum vítahring var hennar fyrrverandi kærasti og vinur. „Ég bað hann um að lána mér smáa summu því ég hefði komið mér í alvarleg peningavandræði.
Þá kom spurning frá honum strax á móti, hversu margar milljónir skuldar þú? Ég vildi ekki segja meir. Eftir mörg skilaboð og margar tilraunir hans til að ná í mig þetta kvöld gaf ég undan. Ég útskýrði aðeins lítinn hluta af því sem hafði gerst og hann var bara: „Sunneva, þetta er „scam.“ Ég neitaði því og sendi honum linkinn sem þessi maður hafði sent mér sem sönnun á því að þetta væri sama síða og hann sjálfur hefði notað. Þá kom það upp að raunverulega síðan var blockchAin, en þessi síða sem maðurinn sendi mér var blockchUin. Þá hafði hann búið til sína eigin síðu, sem lítur nákvæmlega eins út og raunverulega síðan. Ég fríkaði út!“