fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Fókus

Tanja Ýr veltir fyrir sér hvort heilbrigðisstarfsmaður hafi lekið upplýsingunum í fjölmiðla

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 24. júní 2025 10:15

Mynd/Instagram @tanjayra

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áhrifavaldurinn og athafnakonan Tanja Ýr Ástþórsdóttir segist vilja vita hvernig upplýsingar um fæðingu sonar hennar hafi verið lekið í Mbl.is, sem tilkynnti komu hans í heiminn á undan henni. Þó hún vilji trúa því besta upp á fólk þá veltir fyrir sér hvort einhver heilbrigðisstarfsmaður hafi lekið þessu í fjölmiðla.

Tanja Ýr ræðir um þetta í hlaðvarpsþættinum Teboðið. Hún eignaðist son sinn 23. janúar 2025 á Íslandi, en var þá búsett í Bretlandi. Hún var tvístíga með að fæða á Íslandi, einmitt vegna ótta að eitthvað svona myndi gerast. Nokkrum dögum eftir að sonurinn kom í heiminn birtist frétt á Mbl um að drengurinn væri fæddur, en hvorki Tanja Ýr né kærasti hennar, Ryan, höfðu greint frá tíðindunum opinberlega.

„Svo allt í einu byrjaði ég að fá fullt af skilaboðum á Instagram og Facebook. Svo sendi systir mín mér grein og það var bara búið að tilkynna það að ég væri búin að eiga hann, en ég var ekki búin að tilkynna það neins staðar,“ sagði Tanja í Teboðinu.

Mynd/Instagram @tanjayra

Tönju leið eins og það hafi verið tekið eitthvað frá henni, hún fékk ekki að segja vinkonum sínum frá að drengurinn væri fæddur, hennar fyrsta barn, heldur lásu þær um það í fjölmiðlum.

Fréttin birtist einnig fyrir fimm daga skoðun drengsins, sem fékk blessunarlega fulla einkunn þegar kom að henni.

„Mig langar ótrúlega mikið að vita [hvernig þessu var lekið]. Ég hef heyrt ótrúlega margt heilbrigðisstarfsfólk tala og slúðra, bæði til mín eða í partýi, eða heyrt af því. Manni langar auðvitað að halda það besta og vera góði aðilinn og ekki með neikvæðni, en því miður er það bara staðreynd,“ segir Tanja Ýr og bætir við að hún hafi verið efins um að eiga á Íslandi.

„Ég vildi fyrst eiginlega ekki eiga á Íslandi en samt innst inni vildi ég það. En ég vildi það ekki út af þessu, þá ákvað ég að hafa heimafæðingu því mér finnst ég öruggust á Íslandi. Þess vegna langaði mig ekki að gera þetta því ég veit að það er verið að slúðra, því miður sko.“

@tebodid Fjölmiðlar sem tilkynna fæðingu á undan foreldrum og fólk sem lekur því í fjölmiðla að kona er uppá fæðingardeild, are you well? 🥹 @Tanja Ýr ♬ original sound – Teboðið 🎀🫖💓🍨

Sjá einnig: Tanja Ýr sár yfir vinnubrögðum Mbl.is – „Finnst þetta eiginlega óskiljanlegt og vona innilega að mín bíði afsökunarbeiðni“

Tanja Ýr lét MBL heyra það á sínum tíma. „Finnst þetta eiginlega óskiljanlegt og vona innilega að mín bíði afsökunarbeiðni þegar ég vakna eftir lögnina mína í dag,“ sagði hún í lok janúar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt