Á dögunum varð frumvarp dómsmálaráðherra um að skylda öll flugfélög sem fljúga til Íslands til að afhenda íslenskum yfirvöldum farþegalista sína að lögum. Frumskylda ríkisins er að tryggja öryggi borgarana og umfang skipulegrar brotastarfsemi hefur vaxið hratt hér á landi. Þátttaka í alþjóðlegu lögreglusamstarfi hefur verið forsenda þess að tekist hefur að stöðva hættulegt fólk á landamærunum. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Eyjan - Thorbjorg Sigridur - 2
„Þarna voru ákveðnar glufur sem núna er búið að loka og þetta skiptir máli. Þetta er landamæramál og þetta er öryggismál og kannski ekki alveg tilviljun að þetta var fyrsta málið sem ég mælti fyrir á Alþingi sem nýr dómsmálaráðherra,“ segir Þorbjörg Sigríður.
Hún segist hafa fundið stuðning við þetta mál. „Þetta mál er ekki flókið lagalega þannig að þessari glufu hefði að mínu mati mátt loka fyrr en það breytir ekki því, og ég ætla ekkert að vera að hanga í því sérstaklega, en nú er þetta fram komið og við finnum sterk viðbrögð við þessu. Fólk áttar sig á mikilvæginu. Við erum að sjá fréttir af því að lögregluembættið á Suðurnesjum er að vísa frá hættulegum mönnum. Nýlegt dæmi er auðvitað háttsettir menn frá Bandidos mótorhjólagenginu. Það eru ekki gestir sem við ættum að vilja fá hingað til lands. Sú niðurstaða byggir á öflugu alþjóðlegu samstarfi lögreglunnar á Suðurnesjum við systurembætti að utan og því, einmitt, að geta greint svona lista.“
Þorbjörg Sigríður bendir á að auðvitað hafi mikill meirihluti flugfélaga verið að afhenda farþegalista sína til íslenskra yfirvalda. „En við vitum það líka með skipulagða brotastarfsemi að menn leita að veikleikunum þannig að það er ekki nóg að geta sagt: Við erum með upplýsingar í 93 prósent tilvika. Þessi tala verður að vera 100 prósent samhliða því sem við verðum að búa þannig um hnútana að löggæslan í landinu njóti stuðnings stjórnvalda með fjármögnun. Ég er á því og talaði um það mikið í stjórnarandstöðu að löggæsla á íslandi hafi til margra ára verið alvarlega vanfjármögnuð og það hafi dálítið gleymst þegar við erum að tala um innviði, við erum að tala um grunnþjónustu …“
Löggæsla er grunnþjónusta.
„Algerlega, grunnþjónusta, frumskylda ríkisins. Það er meira að segja áhugavert að sjá að í velsældarsamfélögum eins og Íslandi segir fólk gjarnan að efnahagsmál séu mikilvægasta kosningamálið, mikilvægasta hagsmunamálið. Við þekkjum það líka að um leið og það gerist að almenningur í landinu upplifir að öryggi hans er ógnað, ef öryggistilfinningin dvínar, þá breytist þetta. Þá verður svo skýrt að ekkert er þér mikilvægara í þínu daglega lífi þannig að fyrst vilt þú að þér og þínu fólki sé borgið, búi við öryggi, þannig að það hefur verið spegill á það að Ísland er auðvitað öruggt land að flestu leyti en breytingar sem við erum að upplifa og sjá varðandi skipulega brotastarfsemi eru þannig stórstígar og kraftmiklar að við erum að bregðast við.“