Undan strönd Feneyja er eyja sem er sögð svo hryllileg og hættuleg að ferðamenn mega ekki heimsækja hana. Eyjan heitir Poveglia og samanstendur hún af þremur mismunandi hlutum. Einn er alþakinn gróðri, á öðrum eru hrörlegar byggingar og á þeim þriðja var eitt sinn virki.
Saga eyjunnar er allt annað en fögur því á átjándu öld var hún notuð sem einangrunarstöð þegar farsótt gekk yfir.
Þegar skip komu til Ítalíu 1793, og grunur lék á smiti um borð, var þeim beint til eyjunnar að sögn Walks of Italy. Aðrar einangrunarstöðvar voru fullar og Poveglia varð því fljótt staðurinn þar sem fórnarlömb farsóttarinnar voru vistuð.
Talið er að tugir þúsunda manna hafi látist þar og voru margir jarðsettir í svokölluðum „farsóttar-gryfjum“. Sögur herma einnig að ösku fórnarlambanna hafi verið blandað saman við jarðveginn á eyjunni.
Á tuttugustu öldinni var Poveglia breytt í geðsjúkrahús. Sögur segja að þar hafi læknar gert grimmdarlegar tilraunir á sjúklingum.
En það er ekki þetta sem gerir að verkum að ekki má fara til eyjunnar. Ástæðan er að byggingarnar þar eru í svo slæmu ásigkomulagi og óöruggar að mikil hætta stafar af þeim. Af þessum orsökum hafa yfirvöld bannað fólki að fara til eyjunnar.