Sveitarfélögin Dalabyggð og Húnaþing vestra hafa ákveðið að hefja formlegar sameiningarviðræður. Fulltrúar sveitarfélaganna hafa rætt óformlega við í nokkurn tíma.
Sveitarstjórnir beggja sveitarfélaganna samþykktu í síðustu viku að hefja formlegar viðræður eins og greint er frá í Húnahorninu. Málið á þó enn þá eftir að verða endanlega afgreitt og verður það gert í júní.
Í Dalabyggð búa 675 íbúar og í Húnaþingi vestra 1.252. Verði sveitarfélögin sameinuð verður hið nýja sveitarfélag með 1.927 íbúa.
Stefnt er að því að kosið verði um sameiningu í síðasta lagi í desember á þessu ári. Verður leitað eftir sjónarmiðum og hugmyndum íbúa, starfsmanna og hagsmunaaðila við undirbúning tillögu sem lögð verður til atkvæðagreiðslu.
Mikið hefur verið um sameiningar sveitarfélaga undanfarna tvo áratugi eða svo. Ekki er hins vegar algengt að sveitarfélög úr sitthvorum landshlutanum sameinist, en Dalabyggð er á Vesturlandi en Húnaþing vestra á Norðurlandi vestra.