fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Anna lofar Felix og Klöru – Rifjar upp kynni við ónafngreindan tollvörð sem hún segir fyrirmynd Felix

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 21. október 2025 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Anna Kristjánsdóttir, samfélagsrýnir og heldri borgara í sólarparadísinni Tenerife, er stórhrifin af þáttunum Felix og Klara sem sýndir eru á RÚV. Hún segist sérstaklega hrifin af þessum þversumglaða fyrrum tollverði sem heitir Felix og minnist mannsins sem hún telur fyrirmyndina að Felix. Hún minnist einnig tengdaföður Jóns Gnarr, sem leikur Felix.

Jóhann heitinn Gíslason vélfræðingur og tengdafaðir Jóns Gnarr var sögumaður góður, löngum yfirvélstjóri hjá Eimskip og átti oft í skemmtilegum rimmum við Tollgæsluna. Ég efast um að hann hafi verið neitt þagmælskari við tengdasoninn en okkur sem voru honum samferða í lífsstarfinu, en þótt ég hefði aldrei verið honum samskipa til sjós, þá þekktumst við ágætlega.

Þrír þættir hafa þegar verið sýndir og segist Anna þá það á tilfinninguna við áhorfið að  Jón Gnarr og Ragnar Bragason hafi við handritsgerðina haft ónefndan tollvörð í huga, en Anna vill ekki nefna nafn hans af tillitssemi við afkomendur.

sá þótti mjög smámunasamur og átti jafnvel til að telja sígaretturnar í opnum pökkum og gera upptækar, semsagt reglugerðarpúki af verstu gerð.

Umræddur tollvörður sem var vaktstjóri á sinni vakt kom einu sinni sem oftar og leitaði hjá mér er við komum til Reykjavíkur og þegar hann var búinn að gramsa í öllum skúffum og skápum og rífa í burtu hálfa innréttinguna á herberginu mínu án þess að finna neitt, fór hann að skoða bókahilluna hjá mér, sá þar nokkur áhugaverð niðjatöl og þar með hætti hann að leita. Eftir þetta þegar farið var um skipið til að tollskoða og stimpla, sendi hann venjulega Gunna Sæm inn til mín því eins og hann sagði sjálfur, „ég vil ekki taka vini mína fyrir smygl“. Gunni Sæm gerði eins og fyrir hann var lagt, kom inn til mín, stimplaði það sem ég mátti hafa meðferðis, opnaði síðan ísskápinn, náði sér í ískaldan bjór og síðan áttum við góða spjallstund saman, enda prýðismaður eins og flestir tollverðir á þessum árum.

Anna segir yfir áratug síðan umræddur tollvörður lést á tíræðisaldri, en þau hafi oft hist á fundum hjá Ættfræðifélaginu á árunum í kringum aldamótin enda hafi tollvörðurinn verið  ættfræðingur góður og segir Anna þá hafa verið orðinn ljúfur eins og lamb og löngu hættur að vinna, fæddur 1923. 

Við ræddum stundum saman um gömul smyglmál og að sjálfsögðu þurfti hann að taka fram að hann hefði þurft að halda aftur af sumum farmönnum sem gengu fram af sjálfum sér. Mér skilst að hann hafi þótt mjög gamaldags í öllu líferni sínu og þegar þau hjónin fóru í útilegu var að sögn notað tjald álíka fornlegt og notuð voru fyrir miðja tuttugustu öldina.

Ég er búin að horfa á þrjá fyrstu þættina af Felix og Klöru og ég sé umræddan tollvörð ávallt fyrir mér þegar ég sé Jón Gnarr í hlutverki Felix.

Þvílíkur snilldarleikur hjá bæði Jóni Gnarr og Eddu Björgvins.

Segir Anna að hún hlakki til næstu þátta.

Ég bíð þess enn að Gunni Sæm komi til Tenerife eins og hann er margbúinn að lofa mér, svo við getum rifjað upp gömul smyglmál saman sem öll eru fyrnd fyrir löngu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar