
Liverpool hefur samkvæmt Teamtalk áhuga á varnarmanninum Maxime Esteve hjá Burnley.
Esteve, sem er 23 ára gamall Frakki, stóð sig vel þrátt fyrir fall Burnley úr ensku úrvalsdeildinni og er sagður líklegur til að yfirgefa félagið í sumar.
Chelsea og Crystal Palace eru einnig sögð fylgjast grannt með stöðu miðvarðarins.
Breytingar eru framundan hjá Liverpool með komu Andoni Iraola í stjórastólinn og má búast við þó nokkrum leikmönnum inn og út úr félaginu.
Samkvæmt ESPN eru Bradley Barcola, Yan Diomande og Adam Wharton einnig á óskalista Liverpool í sumar.