

Yanet Garcia vakti mikla athygli á HM árið 2018 þegar hún tók þátt í óvenjulegu uppátæki í beinni útsendingu.
Garcia, sem starfar sem veðurfréttakona og fyrirsæta, leyfði samstarfsmönnum sínum í mexíkósku sjónvarpi að sparka í rassinn á sér, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum, í þeirri trú að það myndi færa landsliðinu heppni fyrir leiki á mótinu.

Atvikið fór hratt í dreifingu á samfélagsmiðlum á sínum tíma.
Mexíkó vonast nú til að gera gott mót á heimavelli en landið er eitt af gestgjöfum HM í sumar ásamt Bandaríkjunum og Kanada.
Garcia hefur þegar lýst yfir stuðningi við liðið og verður meðal þeirra sem fylgjast grannt með þegar Mexíkó mætir Suður-Afríku í fyrsta leik sínum á mótinu 11. júní.
