
Liverpool hefur samkvæmt Nicolo Schira hafið viðræður við umboðsmanninn Jorge Mendes vegna mögulegra kaupa á Bradley Barcola frá Paris Saint-Germain.
Barcola, sem er 23 ára gamall, er sagður vera einn af þeim leikmönnum sem Liverpool horfir til eftir brottför Mohamed Salah.
Frakkinn átti flott tímabil með PSG þar sem hann skoraði 11 mörk í deildinni. Er hann hraður og góður einn á einn.
Barcola hefur áður verið orðaður við Liverpool en nú virðist áhugi enska liðsins hafa færst í aukana.
Barcola er samningsbundinn PSG til 2028 og ekki er talið að hann færi ódýrt í sumar.