

Paul Pogba hefur hrósað fyrrum samherja sínum Bruno Fernandes og telur að hann gæti verið í fremstu röð í baráttunni um Gullboltann við aðrar aðstæður.
Fernandes hefur átt frábært tímabil með Manchester United þrátt fyrir misjafnt gengi liðsins. Hann er nálægt því að jafna metið yfir flestar stoðsendingar á einu tímabili í ensku úrvalsdeildinni og hefur jafnframt náð 200 mörkum og stoðsendingum með félaginu á mettíma.
Pogba telur að skortur á titlum hafi áhrif á viðurkenningu leikmannsins. „Ef þú setur hann í Manchester City er hann í topp þremur í Gullboltanum,“ sagði Pogba í viðtali.
Hann bætti við. „Bruno getur gert allt. Hann skorar, leggur upp, hleypur endalaust og er klár leikmaður. Hann er alls staðar á vellinum.“
Pogba viðurkenndi að Fernandes hafi aðra eiginleika en hann sjálfur en lagði áherslu á fjölhæfni hans. „Fótboltamenn skilja hversu góður hann er, jafnvel þó að skoðanir séu skiptar um leikstíl hans.“
Hann líkti honum við leikmenn á borð við Kevin De Bruyne og Luka Modrić. Ummælin hafa vakið athygli og styrkja stöðu Fernandes sem eins af bestu miðjumönnum heims.