fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Niðurlægð af heimsfrægum manni: Bað stanslaust um nektarmyndir en svo lauk öllu skyndilega – „Hvers lags maður er þetta?“

433
Fimmtudaginn 16. apríl 2026 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

OnlyFans-stjarnan Paola Saulino vakti athygli þegar hún sagði frá því að leikmaður Chelsea hafi átt í framhjáhaldi með henni.

Samband þeirra stóð yfir í einhvern tíma en á endanum fannst Saulino hann koma afar illa fram við sig og að henni hafi fundist hún notuð af honum.

Hún segir að stjarnan hafi beðið um nektarmyndir daglega.

Saulino vonast til þess að með því að segja sína sögu geti hún varað aðrar konur við óheiðarlegum knattspyrnumönnum.

„Við vorum í partíi og hann kynnti sig strax fyrir mér og gat í raun ekki tekið augun af mér. Við hlógum saman og áttum frábæra tíma saman. Mér líkaði mjög vel við hann,“ sagði Saulino um fyrstu kynni þeirra. Þau hafi svo sofið saman í bíl og farið á djammið. Eftir það ákváðu þau að hittast síðar.

Eftir þetta var fótboltamaðurinn í miklu samandi við Saulino. „Hann bað mig um nektarmyndir á hverjum degi. Hann bað oft um eina mynd í viðbót. Stundum sendi ég honum myndir seint á kvöldin svo hann gæti séð þær þegar hann vaknaði.“

Þau hittust oft í London, fóru út að borða og slíkt. Saulino á nóg til og segist hafa eytt meira en hann á stefnumótum þeirra. Svo lauk sambandinu hins vegar skyndilega. Leikmaðurinn endaði það með símtali.

„Mér fannst ég niðurlægð. Ég varð ástfangin af honum en hann kom svo illa fram við mig. Ég sá hann fyrir það sem hann var, slæman gaur sem lýgur og virðir ekki annað fólk. Hann notaði mig og hélt framhjá kærustu sinni. Hvers lags maður er þetta?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Opnar sig um að mjög frægur maður hafi heimtað nektarmynd – Tengdist loforði sem hún hafði gefið

Opnar sig um að mjög frægur maður hafi heimtað nektarmynd – Tengdist loforði sem hún hafði gefið
433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fengu leyfi til að fara á fyllerí í gær – Gæti haft áhrif í fallbaráttu deildarinnar

Fengu leyfi til að fara á fyllerí í gær – Gæti haft áhrif í fallbaráttu deildarinnar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Breiðablik sagt leggja mikið á sig til að fá Hólmbert Aron heim

Breiðablik sagt leggja mikið á sig til að fá Hólmbert Aron heim
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið