

Fyrrum landsliðsmaður Íslands í knattspyrnu, Ragnar Sigurðsson, hefur greint frá nýju og óvæntu verkefni sem hann hefur unnið að undanfarin ár, en um er að ræða barnabók sem kemur út á næstu vikum.
Ragnar segir að hugmyndin hafi kviknað fyrir um átta árum. „Um 2018 fékk ég hugmyndina að þessari bók,“ segir hann, en það var ekki fyrr en árið 2021 sem hann hóf að skrifa hana af alvöru. Ferlið reyndist krefjandi og viðurkennir hann að hafa endurskrifað bókina oft. „Ég skrifaði hana líklega um 30 sinnum á íslensku áður en ég var sáttur.“
Lífið leiddi Ragnar síðar til Aarhus í Danmörku þar sem hann stafar í þjálfun, þar tók verkefnið nýja stefnu. „Þar hitti ég rétta fólkið sem trúði á söguna og á mig,“ segir hann. Í kjölfarið var bókin þýdd yfir á dönsku og er nú tilbúin til útgáfu.
Bókin er barnasaga um fugla sem elska fótbolta. „Þetta er saga um fugla sem elska fótbolta, hlaupa á jörðinni og fljúga í loftinu,“ útskýrir Ragnar og bætir við að sagan sé innblásin af hans eigin æsku og ást á íþróttinni.
„Ég er gríðarlega stoltur og ánægður að þetta verkefni sé loksins orðið að veruleika,“ segir hann að lokum.
Bókin verður fáanleg í verslunum eftir um það bil mánuð og vonast Ragnar til að hún falli vel í kramið hjá lesendum.