fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
433Sport

Fáklædd kona olli árekstri – Sjáðu myndirnar

433
Þriðjudaginn 14. apríl 2026 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helen Chamberlain var um árabil eitt þekktasta andlit breska sjónvarpsþáttarins Soccer AM á blómatíma hans. Ferill hennar er rifjaður upp í Daily Star.

Chamberlain lét ekki nægja að vera þáttastjórnandi og prófaði sig áfram í ýmsum hlutverkum, meðal annars sem fyrirsæta.

Eitt eftirminnilegasta atvikið tengt fyrirsætustörfum hennar átti sér stað á Trafalgar Square fyrir HM, þar sem hún kynnti nærfatasett tengt enska landsliðinu.

Hún hefur síðar sagt að uppákoman hafi valdið því að tveir tveggja hæða strætisvagnar hafi rekist saman þar sem ökumaður annars þeirra hafi misst einbeitingu.

Eftir að hafa hætt á Soccer AM, þar sem hún starfaði í rúm 20 ár, færði Chamberlain sig yfir í önnur verkefni, meðal annars hjá TNT Sports.

Í dag lifir hún rólegra lífi úti á landi þar sem hún sinnir búskap, bjargar hundum og fleira til.

Hún segir sjálf að eftir áratugi í sjónvarpi hafi einfaldlega verið kominn tími á nýjan kafla.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Viðar Örn í agabanni – „Það kom upp innanhússmál“

Viðar Örn í agabanni – „Það kom upp innanhússmál“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Ummæli frá borgarstjóra London vekja athygli – Segir að íbúar eigi að vona að Tottenham falli frekar

Ummæli frá borgarstjóra London vekja athygli – Segir að íbúar eigi að vona að Tottenham falli frekar