fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

City setur titilbaráttuna í háaloft með frábærum sigri á Chelsea

Hörður Snævar Jónsson
Sunnudaginn 12. apríl 2026 17:27

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester City vann öruggan 3-0 sigur á Chelsea í ensku úrvalsdeildinni.

Leikurinn var markalaus í hálfleik en City tók öll völd í seinni hálfleik. Nico O’Reilly braut ísinn á 51. mínútu eftir stoðsendingu frá Rayan Cherki. Skömmu síðar bætti Marc Guehi við öðru marki, einnig eftir undirbúning frá Cherki.

Jeremy Doku innsiglaði svo sigurinn á 68. mínútu með þriðja marki gestanna.

Chelsea átti erfitt uppdráttar og náði ekki að svara fyrir sig gegn öflugum leik City í seinni hálfleik.

Sigurinn heldur titilbaráttu City á lífi en liðið er nú sex stigum á eftir Arsenal sem situr á toppnum, City á leik til góða og mætir Arsenal næstu helgi.

City sýndi styrk sinn og gæti enn sett pressu á Arsenal í lokaspretti tímabilsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Fyrir 2 dögum

Framtíð Rashford í lausu lofti

Framtíð Rashford í lausu lofti