fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Algjörlega hneykslaðir á uppákomu síðasta sumar – „Hvers lagt ákvörðun var þetta?“

433
Sunnudaginn 12. apríl 2026 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Víkingurinn Tómas Guðmundsson og Blikinn Kristján Óli Sigurðsson voru gestir Helga Fannars í nýjasta þætti af Íþróttavikunni í tilefni að því að Besta deildin er farin að rúlla.

Menn voru sammála um að Evrópumeistarar PSG væru líklegir í Meistaradeildinni á leiktíðinni, en liðið er 2-0 yfir í einvíginu gegn Liverpool eftir fyrri leikinn í 8-liða úrslitum.

„Eina sem maður setur spurningamerki við er markvarðastaðan hjá þeim. Þessi Rússi með þetta tagl, hann gæti kostað þá þennan titil,“ sagði Kristján og á þar við Matvey Safonov.

Það vakti mikla athygli í sumar þegar PSG vildi losa sig við Guanluigi Donnarumma, sem endaði hjá Manchester City. Félagið keypti Lucas Chevalier frá Lille í staðinn, en hann er á bekknum.

„Hvers lagt ákvörðun var þetta í sumar, að losa Donnarumma?“ spurði Helgi.

„Ein sú galnasta. Það sést nú best á því að markmaðurinn sem var sóttur er bara á bekknum,“ sagði Kristján.

Nánar í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Fyrir 2 dögum

Framtíð Rashford í lausu lofti

Framtíð Rashford í lausu lofti