fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
433Sport

Mótherji Tottenham hjólar í Igor Tudor

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 12. mars 2026 19:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Atletico Madrid vann 5-2 sigur á Tottenham í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum UMeistaradeildarinnar á þriðjudag, en umræðan eftir leikinn snerist að mestu um markmannsmál enska liðsins.

Bráðabirgðastjórinn Igor Tudor ákvað að byrja með markvörðinn Antonin Kinsky í stað aðalmarkvarðarins Guglielmo Vicario. Kinský gerði hins vegar tvö skelfileg mistök á fyrstu mínútunum og eftir aðeins 17 mínútur var hann tekinn af velli.

Á þeim tíma hafði Atletico þegar komist í 3-0 með mörkum frá Marcos Llorente, Antoine Griezmann og Julian Alvarez.

„Mér finnst þetta synd. Ef stjórinn byrjar með þennan markvörð þarf hann að standa með ákvörðuninni. Andlega hlýtur þetta að vera mjög erfitt fyrir hann,“ sagði Antoine Griezmann, leikmaður Atletico, um málið.

Seinni leikur liðanna fer fram á Tottenham Hotspur Stadium í næstu viku.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Þetta er raunveruleg ástæða þess að Maguire fékk lengra bann

Þetta er raunveruleg ástæða þess að Maguire fékk lengra bann
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Segir frá því af hverju Ronaldo henti honum út af Instagram

Segir frá því af hverju Ronaldo henti honum út af Instagram
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Vini Jr urðaði yfir Bellingham – „Haltu kjafti og lokaðu á þér munninum“

Vini Jr urðaði yfir Bellingham – „Haltu kjafti og lokaðu á þér munninum“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Stjarna Arsenal fékk stórfurðulega spurningu eftir að liðið komst áfram í gær – Myndband

Stjarna Arsenal fékk stórfurðulega spurningu eftir að liðið komst áfram í gær – Myndband
433Sport
Í gær

Þarf að sætta sig við hressilega launalækkun í sumar

Þarf að sætta sig við hressilega launalækkun í sumar