fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
433Sport

Sagður dauðþreyttur á ástandinu hjá Newcastle

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 6. febrúar 2026 15:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sandro Tonali er sagður vera orðinn sífellt óánægðari hjá Newcastle United og samkvæmt fréttum á Englandi lét hann í ljós gremju sína eftir tap liðsins gegn Manchester City í deildabikarnum.

Samkvæmt The Sun heyrðist ítalski miðjumaðurinn ræða stöðuna við starfsmann félagsins þar sem hann átti að hafa verið ósáttur við gang mála. Fréttirnar hafa ýtt undir vangaveltur um framtíð hans á St James’ Park.

Nokkur stórlið hafa verið orðuð við Tonali að undanförnu, þar á meðal Arsenal, Manchester City og Chelsea. Þrátt fyrir það hefur Eddie Howe, knattspyrnustjóri Newcastle, reynt að slá á sögusagnirnar.

Hann sagði fyrr í vikunni að félagið hefði engan áhuga á að selja einn af lykilmönnum sínum og undirstrikaði mikilvægi Tonali fyrir liðið. Howe telur miðjumanninn vera stóran hluta af framtíðaráformum félagsins.

Tonali kom til Newcastle með miklar væntingar og hefur verið talinn lykilmaður til lengri tíma, en óljóst er hvort þessar fréttir hafi áhrif á stöðu hans þegar líður á tímabilið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Eiður Smári með slæmar fréttir af syni sínum í beinni útsendingu – Er á leið í aðgerð

Eiður Smári með slæmar fréttir af syni sínum í beinni útsendingu – Er á leið í aðgerð
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Havertz bjargaði jafntefli fyrir Arsenal með marki af vítapunktinum

Havertz bjargaði jafntefli fyrir Arsenal með marki af vítapunktinum
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Telur að þetta hafi vantað hjá enska landsliðinu síðustu ár

Telur að þetta hafi vantað hjá enska landsliðinu síðustu ár
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Hefur kostað United 23 milljarða en ekki skilað neinu

Hefur kostað United 23 milljarða en ekki skilað neinu
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Nýtt ofurpar að fæðast – Athygli vekur hver hennar fyrrverandi er

Nýtt ofurpar að fæðast – Athygli vekur hver hennar fyrrverandi er
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Góð og slæm tíðindi fyrir Arsenal

Góð og slæm tíðindi fyrir Arsenal
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Arteta vill manninn sem neitaði að fara til Rússlands

Arteta vill manninn sem neitaði að fara til Rússlands
433Sport
Í gær

Lykilmaður óvænt á förum frá Akureyri – Segja að ágreiningur hafi komið upp

Lykilmaður óvænt á förum frá Akureyri – Segja að ágreiningur hafi komið upp