fbpx
Þriðjudagur 10.mars 2026
433Sport

Daníel segir flesta en ekki alla hafa sýnt ákvörðuninni skilning – „Heyrði sögur þar sem það voru ekki valin fallegustu orðin þegar það var talað um mig“

433
Sunnudaginn 15. febrúar 2026 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Daníel Hafsteinsson, lykilmaður Íslandsmeistara Víkings, var Gestur Helga Fannars Sigurðssonar í nýjasta þætti af Íþróttavikunni.

Daníel er uppalinn í KA en rifti hann samningi sínum eftir þarsíðustu leiktíð og gekk síðar í raðir Víkings.

Daníel mætir einmitt KA í Lengjubikarnum á morgun og var í gamni spurður að því hvort hann teldi að móttökurnar yrðu óblíðar.

„Ég held ekki. Ég held að sá pakki hafi verið tekinn út í fyrra. Ég fékk kannski ekki óblíðar móttökur, það voru einhverjir söngvar úr stúkunni en bara gaman að því,“ sagði Daníel léttur.

En var honum almennt sýndur skilningur frá fólkinu í KA þegar hann fór fyrir rúmu ári?

„Já og Nei. Það drullaði enginn yfir mig í samtölum við mig. Ég held að þessir helstu hafi haft skilning fyrir þessu. Það er ekkert launungarmál að Víkingur er skrefi fyrir ofan og ég held að menn skilji það.

En ég á marga vini og kunningja á Akureyri og ég heyrði sögur þar sem það voru ekki valin fallegustu orðin þegar það var talað um mig,“ sagði Daníel.

Þátturinn er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Vill taka við Manchester United frekar en Tottenham í sumar

Vill taka við Manchester United frekar en Tottenham í sumar
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Sorglegt andlát hjá 15 ára stúlku um helgina – Hneig niður í miðjum leik

Sorglegt andlát hjá 15 ára stúlku um helgina – Hneig niður í miðjum leik
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Drátturinn í enska bikarnum: Chelsea og Arsenal fengu létta drætti – Stórleikur City og Liverpool

Drátturinn í enska bikarnum: Chelsea og Arsenal fengu létta drætti – Stórleikur City og Liverpool
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Flækist inn í stórt lögfræðimál – Krefjast þess að fá bætur eftir svikin loforð

Flækist inn í stórt lögfræðimál – Krefjast þess að fá bætur eftir svikin loforð
433Sport
Í gær

Xavi vildi leikmanninn sem hefur slegið í gegn með Arsenal – Yfirmennirnir sögðu hann of dýran

Xavi vildi leikmanninn sem hefur slegið í gegn með Arsenal – Yfirmennirnir sögðu hann of dýran
433Sport
Í gær

Svona er staða Íslands eftir fyrstu tvo leikina – Mikið undir á Laugardalsvelli í apríl

Svona er staða Íslands eftir fyrstu tvo leikina – Mikið undir á Laugardalsvelli í apríl