fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Mikil óánægja með uppfærsluna í Laugardalnum – „Eitthvað mesta skemmdarverk sem ég hef orðið vitni af“

433
Föstudaginn 13. febrúar 2026 11:30

Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ný heimasíða Knattspyrnusambands Íslands virðist ekki þjóna þeim tilgangi fyrir fólk sem hefur í árana rás notað síðuna til að afla sér upplýsinga.

Vefurinn var uppfærður í upphafi árs og fékk þar nýtt útlit, talsvert virðist vanta upp á svo fólk sem notar vefinn geti aflað sér upplýsinga.

Ekki er lengur hægt að sjá félagaskipti leikmanna sem hefur skapað mikla gagnrýni, þá er ekki að finna öll gögn sem voru á gamla vefnum. Upplýsingar um feril leikmanns eru þannig ekki mjög nákvæmar.

Jóhann Skúli Jónsson sem stýrir hlaðvarpinu Draumaliðið, hefur notað vefinn mikið til að afla sér upplýsinga fyrir þátt sinn. Það reynist honum erfiðara núna.

„Fer reglulega inn á http://ksí.is og vonast eftir því að sjá tilkynningu um að verið sé að vinna í því að færa gömlu gögnin yfir á nýju síðuna eða eitthvað í þeim dúr. Ég hef ekkert séð og er farinn að hafa miklar áhyggjur. Vildi sýna ykkur dæmi um hörmung nyja vefsins,“ skrifar Jóhann Skúli á X-inu og rekur það svo í löngu máli hvað vandamálið er.

Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson, fréttamaður RÚV, gengur lengra og kallar þetta skemmdarverk. „Þessi uppfærsla á KSÍ vefnum er eitthvað mesta skemmdarverk sem ég hef orðið vitni af með íslensk íþróttagögn. Forysta KSÍ skeit rækilega í deigið þarna og sýnir sögunni enga virðingu. KSÍ til mikilla vansa,“ skrifar Þorkell.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Opnar sig um að mjög frægur maður hafi heimtað nektarmynd – Tengdist loforði sem hún hafði gefið

Opnar sig um að mjög frægur maður hafi heimtað nektarmynd – Tengdist loforði sem hún hafði gefið
433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fengu leyfi til að fara á fyllerí í gær – Gæti haft áhrif í fallbaráttu deildarinnar

Fengu leyfi til að fara á fyllerí í gær – Gæti haft áhrif í fallbaráttu deildarinnar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Breiðablik sagt leggja mikið á sig til að fá Hólmbert Aron heim

Breiðablik sagt leggja mikið á sig til að fá Hólmbert Aron heim
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið