fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Arsenal fór langt með að tryggja efsta sætið – Tap hjá Evrópumeisturunum

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 20. janúar 2026 22:05

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjö leikjum var að ljúka í næstsíðustu umferð deildarkeppni Meistaradeildarinnar.

Arsenal fór langleiðina með að tryggja toppsætið með sterkum 1-3 útisigri á Inter. Gabriel Jesus skoraði tvö mörk og Viktor Gyokeres eitt. Arsenal er með fullt hús og sex stiga forskot og mætir Kairat í lokaumferðinni. Bayern Munchen á tvo leiki eftir og er eina liðið sem getur tölfræðilega náð Skyttunum.

Tottenham náði í dýrmætan sigur upp á að enda í topp átta gegn Dortmund, Evrópumeistarar PSG töpuðu gegn Sporting, Real Madrid slátraði Monaco og FCK náði í jafntefli gegn Napoli þrátt fyrir að vera manni færri stærstan hluta leiks. Ungi Íslendingurinn Viktor Bjarki Daðason þurfti einmitt að bíta í það súra epli að vera tekinn út af í kjölfar þess að Thomas Delaney fékk rautt spjald á 35. mínútu. Rúnar Alex Rúnarsson var á varamannabekk FCK.

Úrslit kvöldsins
FCK 1-1 Napoli
Inter 1-3 Arsenal
Olympiacos 2-0 Leverkusen
Real Madrid 6-1 Monaco
Sporting 2-1 PSG
Tottenham 2-0 Dortmund
Villarreal 1-2 Ajax

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Opnar sig um að mjög frægur maður hafi heimtað nektarmynd – Tengdist loforði sem hún hafði gefið

Opnar sig um að mjög frægur maður hafi heimtað nektarmynd – Tengdist loforði sem hún hafði gefið
433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fengu leyfi til að fara á fyllerí í gær – Gæti haft áhrif í fallbaráttu deildarinnar

Fengu leyfi til að fara á fyllerí í gær – Gæti haft áhrif í fallbaráttu deildarinnar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Breiðablik sagt leggja mikið á sig til að fá Hólmbert Aron heim

Breiðablik sagt leggja mikið á sig til að fá Hólmbert Aron heim
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið