
Móðir Harry Maguire er vægast sagt sleginn yfir því að sonur hennar hafi verið skilinn eftir utan HM-hóps enska landsliðsins.
Þessi reynslumikli varnarmaður Manchester United verður ekki í 26 manna hópi Thomas Tuchel fyrir mótið í sumar og staðfesti hann það sjálfur á samfélagsmiðlum í gær.
„Ég var sannfærður um að ég gæti spilað stórt hlutverk fyrir þjóðina mína í sumar eftir tímabilið sem ég átti. Ég er hissa og miður mín yfir þessari ákvörðun,“ skrifaði Maguire.
Móðir hans, Zoe Maguire, brást harkalega við á samfélagsmiðum.
„Mér býður gjörsamlega við þessu. Þú gast ekki gert meira. Haltu höfðinu hátt. Þetta er skammarlegt,“ skrifaði hún.
Systkini Maguire gagnrýndu ákvörðunina einnig opinberlega.
Maguire hefur verið stór hluti af enska landsliðinu í tæpan áratug og hefur átt góðu gengi að fagna með United eftir áramót. Ákvörðunin kemur því mörgum á óvart.