fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
433Sport

Arsenal er Englandsmeistari í fyrsta sinn í 22 ár – City tókst ekki að vinna á Suðurströndinni

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 19. maí 2026 20:27

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arsenal er Englandsmeistari í fyrsta sinn í 22 ár. Þetta varð ljóst eftir að Manchester City gerði jafntefli gegn Bournemouth á útivelli í úrvalsdeildinni í kvöld.

City náði sér í raun aldrei á strik í leiknum. Junior Kroupi, sem hefur slegið í gegn á leiktíðinni, kom Bournemouth yfir með glæsilegu skoti á 39. mínútu og þannig var staðan þar til í uppbótartíma, þegar Erling Braut Haaland jafnaði fyrir City. Þar við sat.

Eli Junior Kroupi og Granit Xhaka í baráttunni. Getty Images

City mætir Aston Villa í lokaumferðinni og getur ekki lengur náð Arsenal, en fjögur stig eru á milli liðanna.

Arsenal heimsækir Crystal Palace á sunnudag, þar sem liðið tekur á móti Englandsmeistaratitlinum. Leikmenn og stuðningsmenn um allan heim munu hins vegar fagna í kvöld og næstu daga.

Gríðarlegur uppgangur hefur verið hjá Arsenal undir stjórn Mikel Arteta undanfarin ár. Hann kom liðinu aftur í Meistaradeildina og í titilbaráttu þrjú ár í röð, áður en liðið vann loks titilinn nú.

Bournemouth hefur átt frábært tímabil og hefur tryggt Evrópusæti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Segir að Ferguson hefði sparkað Salah öfugum út eftir svona hegðun

Segir að Ferguson hefði sparkað Salah öfugum út eftir svona hegðun
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Conte vill segja upp störfum

Conte vill segja upp störfum
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Birti saklausar myndir af sjálfri sér í gær – Gat ekki grunað hvaða fréttir færu í loftið skömmu síðar

Birti saklausar myndir af sjálfri sér í gær – Gat ekki grunað hvaða fréttir færu í loftið skömmu síðar
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Pep Guardiola sagður brjálaður yfir lekanum í gærkvöldi

Pep Guardiola sagður brjálaður yfir lekanum í gærkvöldi