

Helgi Fannar og Hörður Snævar fóru yfir það helsta í Íþróttavikunni á 433.is.
Það er ekki enn vitað hvort Southampton fái að spila úrslitaleik umspilsins um sæti í úrvalsdeildinni við Hull vegna meintra njósna félagsins á æfingasvæði Middlesbrough fyrir undanúrslitaeinvígið.
„Þetta er afskaplega óheppilegt mál,“ sagði Helgi. Hörður tók undir þetta en telur forskotið sem fæst með þessu ekki eins mikið og gefið sé í skyn. Þá hafi Middlesbrough gefið málinu of mikið súrefni í aðdraganda leikjanna.
„Auðvitað er þetta óheiðarlegt en að sama skapi finnst mér að Middlesbrough gæti alveg gert eitthvað til að gera það örlítið erfiðara að fylgjast með æfingum hjá þeim. Þú þarft nú bara að keyra inn á einhvern golfvöll til að sjá fyrir allt æfingasvæðið.“